01.12.2016
!!Það vantar meira af hvíta gullinu!!
Stefnum á að opna á morgun föstudaginn 2. desember kl 15-18. Það vantar ca 20-30 sm af snjó á neðstasvæðið og verður eingöngu hægt að opna neðstasvæðið ef bætir í snjóinn.
Á öðrum svæðum vantar töluvert uppá. Sumarið er akki alveg farið.
Sjáumst hress í Aðalbakaríinu í kvöld og minnum á að ljós verða tendruð á jólatréinu kl 18:00 og lengri opnunartími verslana í kvöld, bara gleði, gleði.
Fjallamenn
28.11.2016
Forsala vetrarkorta í fullum gangi
Stendur til 11. desember
Kortin eru til sölu í Aðalbakaríi og verður hægt að kaupa vetrarkort
í Bakaríinu til 31. desember.
Einnig er hægt að panta með því að senda tp á skard@simnet.is og greiða inn á reikning
348-26-1254 kt 640908-0680
Frístundastyrkir eru teknir á skíðasvæðinu.
Munið eftir vasakortum fyllum inn á þau í Skarðsdalum
Kort fullorðins 20.000.- í stað 25.000.-
Kort barna (9-17 ára) 8.000.- í stað 10.000.-
Kort framhalds/háskólanema 12.000.- í stað 15.000.-
Ath. Þetta verð gildir til 11. desember
Skarðsprins verður í Bakaríinu 1. des frá kl 20-22
Myndir og létt spjall.
Skíði Skíði og Skíði
Opnum 1 des kl 15:00
18.11.2016
Forsala vetrarkorta 2016-17
Er frá 24. nóvember og stendur til 11. desember.
Hægt er að kaupa kort í forsölu í Aðalbakaríi
Einnig er hægt að panta með því að senda tp á skard@simnet.is og greiða inn á reikning
348-26-1254 kt 640908-0680
Kort fullorðins 20.000.- í stað 25.000.-
Kort barna (9-17 ára) 8.000.- í stað 10.000.-
Kort framhalds/háskóla 12.000.- í stað 15.000.-
Öllum kortum fylgir norðurlandskort
Svæðið opnar 1. desember
13.11.2016
Allt að gerast 12 dagar í opnun
06.11.2016
Nú styttist í opnun svæðisins, opnum eftir 17 daga. Forsala vetrarkorta hefst 26. nóvember og stendur til 11. desember. Nánari upplýsingar koma síðar.
Það er snjókoma í kortunum frá 16. nóvember og svo áfram.
Fjallamenn
17.10.2016
Nú styttist í opnun svæðisins 44 dagar í opnun en svæðið opnar 1. desember.
Vetrarkortatilboð verður í nóv, dagsetning kemur síðar. Fylgist með okkur hér og á facebook.
Starfsmenn
17.05.2016
Nú liggja fyrir yfirfarin úrslit í Skarðsrennslinu 2016
Dömur
Nr 1 Anna Vilbergsdóttir tími 3.19.37
Nr 2 Kristín Guðmundsdóttir " 3.23.29
Nr 3 Hanna S Ásgeirsdóttir " 3.33.53
Nr 4 Erla Gunnlaugsdóttir " 3.53.04
Herrar
Nr 1 Ólafur Eiríksson tími 2.21.38
Nr 2 Jón Fanndal " 2.22.89
Nr 3 Ingvar Steinarsson " 2.23.43
Nr 4 Halldór Antonsson " 2.33.34
Nr 5 Ottó Leifsson " 2.39.57
Nr 6 Björgvin Gunnarsson " 2.39.91
Nr 7 Mark Duffield " 2.43.11
Nr 8 Sævar Pétursson " 2.46.49
Nr 9 Valtýr Sigurðsson " 3.13.22
Nr 10 Skúli Jónsson " 3.22.00
Nr 11 Theodór Ottósson " 3.34.67
Mótsnefnd
15.05.2016
Innilegt þakklæti fyrir veturinn en í fjallið komu 10 þúsund manns og opnunardagar voru 104 og takk fyrir mætinguna um Hvítasunnuna, Skarðsrennslið verður að ári 13. maí og keppt verður í flokkum 21-30 ára, 31-40 ára, 41-50 ára og 51 ára og eldri og að sjálfsögðu konur og karlar.
Sjáumst hress næsta vetur
Fjallamenn
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:30 er austan gola, hiti 7 stig og heiðskírt. Færið er vorfæri og er töluvert mjúkt í öllum brekkum. Takið daginn snemma gæti farið að vinda af SW þegar líður á daginn.
Störtum Skarðsrennsli kl 13:00
Sjáumst hress
Fjallamenn
14.05.2016
Kl 13:00 Lokað vegna hvassviðris, reynum á morgun hvítasunnudag.
Verðið er SW 10-20 m/sek
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:30 WSW 6-14m/sek, hiti 3 stig og er alskýjað en samkvæmt veðurspá að að birta til í dag. Færið er vorfæri töluvert mjúkt.
Í dag fer fram Skarðsrennsli, start kl 13:00, skráning á staðnum og eru veitingar við Skíðaskálan. Skráningagjald er kr 4.000.- 18 ára og eldri, verðlaun eru vetrarkort og ýmislegt frá Fjallakofanum.
Styrtaraðili er Réttingaverkstæði Jóa
Það sem er troðið er í dag Neðstasvæði, T-lyftusvæðið og Miðbakka frá Búngutopp að Hálslyftu en í þeim bakka fer fram rennslið.
Velkomin í Skarðsdalinn
Fjallamenn
09.05.2016
Svæðið verður lokað frá mánudeginum 9. maí -föstudagsins 13. maí.
Opnum svæðið laugardaginn 14. maí og sunnudaginn 15. maí sem eru loka dagar á þessum vetri.
Skarðsrennsli fer fram laugardaginn 14. maí start kl 13:00 3 km rennsli (risasvig) grill og húllum hæ.
Keppt er í flokkum 18 ára og eldri og 10-18 ára
Vegleg verðlaun
Réttinagverkstæði Jóa og Fjallakofinn
Sjáumst hress