Fréttir

Miðvikudaginn 1. febrúar er lokað vegna hvassviðris

kl 15:30 Í dag höfum við lokað svæðinu vegna hvassviðris, veðrið kl 15:30 SV 8-20m/sek, 2 stiga frost og töluverður skafrenningur. Opnum á morgun kl 11-20 Nýjar upplýsingar um kl 09:00 Starfsmenn Lokað eins og er, veðrið kl 13:45 SV 6-14m/sek, 1 stigs frost og slyddahríð, færið er troðinn blautur snjór. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 15:00 3,5 km Nýjar upplýsingar kl 15:30 Velkomin á skíði Starfsmenn  

Þriðjudaginn 31. janúar opið kl 11-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-19, veðrið kl 13:30 SSA 2-7m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað, færið er troðinn rakur snjór, snjórinn heldur mjög vel. Göngubraut á Hólssvæði 3,5 km létt og góð braut fyrir alla. Velkomin á skíði Starfsmenn  

Mánudaginn 30. janúar opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 13:00 SSW 2-5m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni en það er mjúkt fyrir utan troðnar brekkur, mjög gott færi fyrir bretti og fjallaskíðun. Göngubraut tilbúinn kl 15:00 á Hólssvæðinu ca 2,5 km Velkomin í fjallið Starfsmenn

Sunnudaginn 29. janúar opið kl 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 12:00 SSA 2-6m/sek, hiti 5 stig og léttskýjað. Svona til upplýsinga þá fór hitinn upp í 15,1 gráðu kl 02:00 í nótt. Færið er troðinn rakur snjór og er töluvert mjúkt færi er betra eftir því sem ofar kemur. Langtíma veðurspá af Norge veðurstofu. http://www.yr.no/sted/Island/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur~2627003/langtidsvarsel.html Kl 11:00 opnum við Neðstu-lyftu og T-lyftu Kl 12:00 opnum við Búngu-lyftu. Göngubraut tilbúin á Hólssvæði kl 10:00 ca 2,5 km létt og góð braut fyrir alla. Veðurspá dagsins: Sunnan 10-18 m/s, en hægari um og upp úr hádegi. Dálítil rigning með köflum. Suðvestan 5-10 og bjart veður á morgun. Kólnandi veður, hiti 1 til 4 stig síðdegis. Spá gerð: 29.01.2012 06:35. Gildir til: 30.01.2012 18:00. Velkomin á skíði Starfsmenn  

Laugardaginn 28. janúar opið kl 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 12:45 sunnan gola, hiti 7 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór, það er um 100 cm snjólag á Neðstasvæði og T-lyftusvæði en um 300 cm snjólag á Búngusvæði.   Göngubraut er tilbúin á Hólssvæðinu ca 2,5 km létt og góð fyrir alla. Starfsmenn  

Föstudaginn 27. janúar verður lokað

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna mikillar vinnu á svæðinu við mokstur og troðslu einnig tekur töluverðan tíma að moka veginn upp á svæðið, það hefur snjóða ca 70 cm að meðlatali á svæðinu. Göngubraut er tilbúin á Hólssvæðinu ca 2,5 km létt og góð braut fyrir alla. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsinar kl 08:00 í fyrramálið Starfsmenn

Fimmtudaginn 26. janúar verður lokað vegna aðstæðna

Í dag verður skíðasvæðið lokað vegna aðstæðna, kl 11:30 VSV 3-7m/sek, töluverð snjókoma og er mjög blint einnig eru snjóalög ótrygg og þarf að skoða aðstæður þegar styttir upp betur. Þetta veðurfar er að breytast seinnipartinn í dag í heimnablíðu og er veðurspá næstu dag sunnan áttir og má segja að við höfum sloppið mjög vel frá þessu veðri allavega betur en vesturhluti landsins. Minni á skiptihelgi 28-29/1 fyrir vetrarkortshafa, nú getið þið farið á önnur svæði norðanlands s s Sauðárkrók, Dalvík og Akureyri.  Tökum stöðuna á morgun og verða nýjar upplýsingar kl 11:00 á morgun. Starfsmenn

Miðvikudaginn 25. janúar verður lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs kl 10:30 er NA-10-20m/sek, töluverður éljagangur og skafrenningur og er veðurspá hjá okkur ekki hliðholl í dag. Nýjar upplýsingar á morgun kl 13:00 Starfsmenn

Þriðjudaginn 24. janúar lokað

Skíðasvæðið verður lokað í dag, opnum á morgun kl 15-20, nýjar upplýsingar um kl 13:00 Grunnskóli Fjallabyggðar verður á skíðum á morgun frá kl 09-13. Starfsmenn  

Mánudaginn 23. janúar opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 13:00 NA 4-6m/sek, frost 2 stig og alskýjað, færið er troðinn nýr snjór frábært færi fyrir alla. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km létt og góð braut fyrir alla. Velkomin á skíði Starfsmenn