Fréttir

Miðvikudaginn 1. febrúar opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott og verður svo í dag, WSW gola, um frostmark og heiðskírt og  og sú gula að sýna sig, færið er troðinn þurr snjór. Velkomin í dalinn góða Starfsmenn

Þriðjudaginn 31. janúar lokað

Lokað verður í dag, opnum á morgun miðvikudaginn 1. feb kl 14:00 Nú tökum við starfsmenn okkur 1 dag frí enda búið að keyra svæðið 20 daga nú í janúar. Sjáumst hress á morgun Starfsmenn

Mánudaginn 30. janúar opið kl 14-18:30

Opið í dag frá kl 14-18:30, veðrið er mjög gott austan gola, frost 1 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór. Dalurinn skartar sýnu fegursta í dag. Það er unnið að því að gera Búngusvæði klárt, kemur inn á miðvikudaginn. Velkomin í fjallið Fjallamenn

Mánudaginn 30. janúar opið kl 14-18:30

Opið í dag frá kl 14-18:30, veðrið er austan gola, frost 1-2 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór. Dalurinn er afar fagur í dag, sennilega sá flottasti í dag, hvítur og brekkur eins og silki. Það er verið að koma Búngusvæðinu inn og verður tilbúið á miðvikudaginn í þessari viku. Sjáumst hress Fjallamenn

Sunnudaginn 29. janúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er austan gola, frost 7 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór, það verður mjög gott veður og færi í dag.  Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 28. janúar opið kl 12-16

Opið í dag frá kl 12-16, veðrið er NNA 4-12m/sek, frost 2 stig og er lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór það hefur snjóa ca 10-20 sm. Að hugsa sér það er glænýr snjór kominn. Gleðilegan sólardag og hún er hér fyrir ofan Velkomin í fjallið Starsfmenn

Föstudaginn 27. janúar opið/open kl 14-18:30

Opið í dag frá kl 14-18:30, veðrið kl 15:20 austan 3-7 m/sek, frost 3 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Það mun snjóa hjá okkur næsta sólahringinn sem er afar jákvætt. Veðurspá fyrir Sigló: http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752   Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 26. janúar opið/open kl 15-19

  Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 15:15 SW 8-15m/sek, frost 1 stig og það er að birta til og veðrið að ganga niður. Færið er harðfenni og er mjög gott færi fyrir svigskíði í troðnum brekkum.  Það er snjókoma í veðurkortunum næstu 2 daga svo þetta er allt að gerst í Skarðsdalnum enda treystum við á það sem kemur úr loftinu og það gengur bara nokkuð vel, enda búið að vera opið í 16 daga það sem af er, á svæðinu erum við með 1500 metra langa brekku klára og en eigum við til góða ca 1000 metra brekku í efrihlutanum og dettur hún inn von bráðar. Velkomin í dalinn góða Starfsmenn

Miðvikudaginn 25. janúar opið/open kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:15 logn, hiti 1 stig og alskýjað, færið er unnið harðfenni það var frost í nótt en það verður 1-3 stiga hiti í dag. Það er ekki mikill snjór á svæðinu og geta grjót staðið uppúr, en þetta stendur allt til bóta, það er snjókoma í veðurkortunum næstu daga. Velkomin í fjallið  Starfsmenn

Þriðjudaginn 24. janúar lokað/closed

Það verður lokað í dag, opnum á morgun miðvikudaginn 25. janúar kl 14-19 Sjáumst hress Starfsmenn