Fréttir

Mánudaginn 23. janúar opið/open kl 15-18:30

Opið í dag frá kl 15-18:30 veðrið er N gola, hiti 6 stig og alskýjað. Færið er rakur snjór en heldur bara nokkuð vel. T-lyftusvæðið er 1000 metra langt og Neðstasvæðið er 500 metra langt. Þetta er veðurspá dagsins og næstu daga: http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752 Velkomin í fjallið Umsjónarmaður

Sunnudaginn 22. janúar opið /open 11-16

Opið í dag frá kl  11-16, veðrið er kl 11:00 WSW 2-8m/sek, hiti 2 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór. Seinkum aðeins opnun í dag vegna þessa að vindur á að ganga niður um kl 11 miðað við veðurkortin. Nú kemur inn 3 lyftan Hálslyftan og er færið í Hálsbrekku nokkuð ísað, en innrileið er mýkri. Sjáumst hress  

Laugardaginn 21. janúar opið /open kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott sunnan gola, hiti 2 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni. Tvær brekkur eru opnar við T-lyftu og Neðstulyftu Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 20, janúar opið kl 14-18

Opið í dag frá kl 14-18, veðrið er sunnan gola og verður svo í dag hiti 4-6 stig en alskýjað, færið er troðinn þurr snjór og mun færið mýkjast þegar líður á daginn. Veðurútlit næstu 3-4 daga er mjög gott. 2 lyftur verða opnar(1500m brekka) næstu 3 daga, okkur vantar meiri snjó í efrihlutan þá aðallega í lyftusporin þannig að ekki er víst að við getum skrapað snjó til að opna fleiri lyftur.  Veðurútlit næstu daga: http://www.yr.no/place/Iceland/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur/ http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752        Velkomin í fjallið  Fjallamenn

Fimmtudaginn 19. janúar opið/open kl 14-18

Opið í dag frá kl 14-18, veðrið er mjög gott og verður svo í dag sunnan gola, frost 9 stig og léttskýjað. Færið er mjög gott troðin ný fönnin, drauma færi fyrir alla. S s frábært færi og veður í dag   Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 18. janúar lokað/closed

KL 13:00 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris og er töluverður skafrenningur. Lokað eins og er vegna hvassviðris og það snjóar töluvert hjá okkur, nýjar upplýsingar kl 13:00. Veðurútlit í dag er okkur ekki í hag spáð er SW allhvössum, en næstu dagar líta mjög vel út. Fylgist með okkur hér og á facebook Starfsmenn 

Þriðjudaginn 17. janúar opið/open kl 15-18

Opið í dag frá kl 15-18. Veðrið kl 16:00 S gola, frost 1 stig og léttskýjað, það á að lægja þegar líður á daginn. Færið er unnið harðfenni. Ath eru steinar sem standa upp úr á T-lyftusvæðinu. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Mánudaginn 16. janúar lokað/closed

Lokað í dag vegna hvassviðris, vindhviður eru nú kl 14:00 25-30m/sek af SW og verður svo í dag. Nýjar upplýsingar á morgun kl 12:00 Starfsmenn

Sunnudaginn 15. janúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 14:30 sunnan gola , hiti 12 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór en það er mjög mjúkt í brekkum og er ört hlýnandi og mun hvessa kl 15:00 af SV. Ath þessar upplýsingar er varðar mat á snjóflóðaaðstæðum. http://www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa#region-Tn  Hitamælir í 800 metra hæð við Illviðrishnjúk 8 stiga hiti. http://snowsense.is/is/#!/maelir/189_t           Velkomin í fjallið

Laugardaginn 14. janúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 S-gola, frost 3 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór, silkifæri. Velkomin í fjallið.