Fréttir

Því miður verðum við að hafa lokað í dag sunnudaginn 1. mars vegna veðurs

Við verum að hafa lokða í dag vegna veðurs, það er Sv-8-15m/sek og meira í hviðum. Við opnum á þriðjudaginn kl 16:00 nánari upplýsingar um kl 12:00 í síma 878-3399 og heimasíðu. Starfsmenn  

Lokað eins og er.

Við getum því miður ekki opnað kl 11:00 eins og við ætluðum, það er SV-8-15m/sek og meira í hviðum, nýjar upplýsingar um kl 11:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu. Starfsmenn

Lokað eins og er.

Það er lokað eins er, það er of hvasst, nýjar upplýsingar um kl 10:00. Við stefnum á að opna kl 11:00 Nú er SV-8-15m/sek og meira í hviðum Starfsmenn

Opið verður í dag laugardaginn 28, febrúar

Opið verður í dag frá kl 10:00-16:00, veðrið í fjallinu er mjög gott V-gola, -1c° og léttskýjað, færið er nýr troðinn snjór mjög gott færi fyrir alla. Gönguspor við Hól. Allar lyftur keyrðar. Snocrossmót fer fram í austubotni í Skarðsdalnum. Velkomin á skíði starfsmenn.  

Opið í dag föstudaginn 27. febrúar

Opið verður í dag frá kl 13:00-20:00, veðrið er mjög gott logn, -5c° og léttskýjað og færið er mjög gott nýr snjór á öllu svæðinu, alveg lista færi fyrir alla skíðaiðkendur, nú er um að gera að drífa sig í fjallið, brekkur við allra hæfi, 3 lyftur keyrðar samtals lengd 2km og brekkur um 2,3 km og breiddin eftir því, gerist ekki betra, gönguspor við Hól. Snjócrossbraut verður tilbúinn um kl 16:00 í dag tilbúinn til æfinga fyrir mótið sem fer fram á laugardaginn 28. febrúar kl 14:00. Búast má við 1000-1500 gestum yfir helginna, ég mæli með að gestir mæti tímalega á laugardaginn og sunnudaginn, við opnum lyftur báða daga kl 10:00 og lokum kl 16:00. Velkomin til Siglufjarðar (Fjallabyggð) á skíði og snjósleða. Starfsmenn

Við opnum á morgun föstudaginn 27. febrúar kl 13:00

Opnað verður á morgun frá kl 13-20, veðurútlit er mjög gott og færið er eins og það gerist best, nýr snjór er á öllu svæðinu og er snjór töluvert mikill.  Nánari upplýsingar um kl 10:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu. Velkomin í fjallið starfsmenn    

Opið í dag fimmtudaginn 26. febrúar

Opið verður í dag frá kl 10:00-14:00 og aftur frá kl 16:00-20:00 neðsta-lyfta og t-lyfta verða opnar í fyrri opnun og allar 3 lyfturnar verða opnar í seinni opnun. Veðrið í fjallinu er N-gola, -5c° og heiðskírt. Gönguspor við Hól. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Lokað í dag miðvikudaginn 25 febrúar vegna veðurs

Við verðum að hafa lokað í dag vegna veðurs, en við opnum á morgun fimmtudaginn 26. febrúar kl 10:00-14:00 og aftur frá kl 16:00-20:00. Nánari upplýsingar verða um kl 09:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu Starfsmenn  

Við stefnum á að opna í dag miðvikudaginn 25. febrúar

Við stefnu á að opna kl 16-20 í dag, veðrið í fjallinu er NA-10-15m/sek, -6c° og töluverður skafrenningur, nýjar upplýsingar um kl 15:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu. Veðurútlit er nokkuð gott næstu daga. Starfsmenn    

Við lokum í dag þriðjudaginn 24. febrúar kl 17:00 vegna veðurs

Við lokum í dag vegna veðurs en opnum á morgun miðvikudaginn 25. febrúar kl 14:00-20:00 nánari upplýsingar kl 12:00 í síma 878-3399 og heimasíðu. Starfsmenn