Fréttir

Opið í dag þriðjudaginn 24. febrúar

Opið verður frá kl 13:00-20:00, veðrið í fjallinu er NA 4-6m/sek, -3c° og töluverður éljagangur, færið er mjög gott troðinn nýr snjór á öllu svæðinu, og hvet ég alla að drífa sig á skíði sem fyrst það gæti byrjað að hvessa seinni partinn. Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 13:00 en Búngu-lyftu um kl 15:30. Velkomin í fjallið starfsmenn.    

Opið í dag mánudaginn 23. febrúar

Opið verður frá kl 13-17 í dag, veðrið í fjallinu er NA 5-10m/sek, -5c° og snjóél, færið er troðinn nýr snjór ágætis færi fyrir alla. Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, það er of hvasst í Búngu-lyftu. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Opið í dag sunnudaginn 22. febrúar

Skíðasvæðið verður opið frá kl 11:00-17:00, veðrið er NV 4-10m/sek, -4c° og éljagangur, færið er nýr troðinn snjór og hraðfenni undir, það er töluvert blint, góð gleraugu hjálp mikið til. Allar 3 lyfturnar verða keyrðar Velkomin í fjallið starfsmenn

Opið í dag laugardaginn 21. febrúar

Opið í dag frá kl 10:00-16:00 færið er troðinn nýr snjór dálítið blautur, veðrið er S-gola, +4c° og léttskýjað. Allar 3 lyfturnar verða keyrðar. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Opið í dag laugardaginn 21. febrúar

Opið verður í dag frá kl 10:00-16:00, veðrið í fjallinu er S-gola, +4c° og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór dálítið blautur. Farið varlega í ótroðnu Allar 3 lyfturnar eru opnar. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Opið í dag laugardaginn 21. febrúar

Opið verður í dag frá kl 10:00-16:00, veðrið í fjallinu er S-gola, +4c° á neðrasvæðinu en +2c° á efrasvæði og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór aðeins blautur, allar brekkur eru klárar en farið varlega útan við troðnar brautir. Við verðum með allar 3 lyfturnar opnar og nú er um að gera að drífa sig í fjallið og njóta útiverunar. Velkomin starfsmenn

Opið í dag föstudaginn 20. febrúar

Opið verður í dag frá kl 11:00-20:00 Veðrið í fjallinu er A gola, -2c°, alskýjað, smá éljagangur,  færið er troðinn nýr snjór í bland við harðfenni en nægur snjór á öllu svæðinu. Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 11:00 og Búngu-lyftu sennilega kl 13:00 eða 14:00 Velkomin í fjallið. Starfsmenn

Lokað verður í dag

Lokað í dag vegna veðurs, við getum ekki keyrt lyftur en við opnum á morgun kl 14:00 nánari upplýsingar á morgun um kl 12:00 í 878-3399 og á heimasíðu Starfsmenn  

Opið í dag fimmtudaginn 19. febrúar

Opið verður í dag, fyrri opnun frá kl 09-:30-12:00 eingöngu neðsta-lyfta og seinni opnun frá kl 16:00-21:00 þá vonandi allar 3 lyfturnar. Veðrið í fjallinu er SV 4-8m/sek við neðstu-lyftu en SV 6-15m/sek á efrasvæði og meira í hviðum -1c° og léttskýjað, færið er troðið harðfenni, Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Opið í dag miðvikudaginn 18. febrúar

Tvær opnanir verða í dag, fyrri opnun frá kl 11:30-14:30 neðsta-lyfta og t-lyfta opnar, seinni opnun frá kl 16:00-20:00 þá opnum við allar 3 lyfturnar. Veðrið er gengið niður nú er S-gola, +4c° og léttskýjað, færið er troðinn blautur snjór. Velkomin í fjallið 4,5,6 bekkur Grunnskóla Siglufjarðar og aðrir gestir. Starfsmenn