Opið í dag þriðjudaginn 24. febrúar

Skíðakrakkar í heimsókn frá Mývatni og Breiðablik
Skíðakrakkar í heimsókn frá Mývatni og Breiðablik

Opið verður frá kl 13:00-20:00, veðrið í fjallinu er NA 4-6m/sek, -3c° og töluverður éljagangur, færið er mjög gott troðinn nýr snjór á öllu svæðinu, og hvet ég alla að drífa sig á skíði sem fyrst það gæti byrjað að hvessa seinni partinn.

Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 13:00 en Búngu-lyftu um kl 15:30.

Velkomin í fjallið starfsmenn.