Fréttir

Fimmtudaginn 1. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er NA 5-10m/sek, frost 4 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni og er aðeins nýr snjór ofaná brekkum. Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 2,5 km hringur Velkomin á skíði í dag.

Miðvikudaginn 28. febrúar lokað/closed

Hvað sagði ég kl 10:25, það byrjaði að rigna kl 14:20 og nú klukkan 16:45 er byrjað að snjóa og er komið frost í Skarðsdalnum fagra. Sjáumst í nýrri fönninni á morgun. Það verður lokað í dag, það mun byrja að rigna á milli 14-15 og svo verður slydda síðan endar þetta með snjókomu seinnipartinn í dag. Tökum á móti nýjum snjó og það verður opið á morgun fimmtudaginn í flottu veðri og næstu daga í hægri NA átt með éljagangi. Sjáumst hress í Skarðsdalnum

Þriðjudaginn 27. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, nú er vor í lofti WSW gola, hiti 6 stig, snjóhiti +1c og léttskýjað, færið er vorfæri en veðrið bætir það upp, en færið er betra eftir því sem ofar kemur. Verið léttklædd í dag. Veðurúlit næstu dag eða frá föstudegi til sunnudags verður éljagangur eða snjókoma og þessu fagna allir. Hólsgöngubraut tilbúin en hringurinn hefur tekið breytingum vegna hitans sem hefur verið undanfarið. Velkomin á skíði 

Mánudaginn 26. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19,  kl 16:30 er veðrið mjög gott og verður svo í dag WSW gola, hiti 6 stig en alskýjað. Snjóhiti er -1,5c Færið er unnið harðfenni og mun færið mýkjast þegar líður á daginn. Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur. Velkomin á skíði í dag

Sunnudaginn 25. febrúar opið/open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðirð er mjög gott sunnan gola, hiti 1-4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. 8 brekkur klárar, æfintýraleið og  hólar við Neðstasvæðið. Í Búngubakka fer fram stórsvigæfing til kl 12:00, það er önnur skíðaleið niður Búngusvæði Miðbakki og að Hálslyftu. Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 12:00 Velkomin á skíði í dag

Laugardaginn 24. febrúar opið/open 10-16

Takk öll fyrir komuna í dag, það verður mjög gott veður hér á morgun og Skarðsdalurinn mun taka vel á móti ykkur. Nú klukkan 14:30 eru 900 manns komnir í fjallið. Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er sunnan 4-10m/sek, hiti 6 stig og bjart. Hitastig í snjónum er +0,6. Færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum. Í dag fer fram Stubbamót við Neðstu-lyftu fyrir 5-8 ára sem hefst kl 11:30 og tökum tillit til þess. Það er hægt að skíða niður með lyftuni og æfintýraleið er opin. Í Búngubakka og niður í Hálslyftu þar fer fram stórsvigsæfing. Miðbakki er troðinn á Búngusvæði og er skíðaleið niður að Hálslyftu Hólsgöngubraut er tilbúin kl 13:00 Velkomin á skíði

Föstudaginn 23. febrúar opið/open 13-19

Það verður flott veður um helgina. Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er SA 3-10m/sek, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 3 km hringur Á morgun kl 11:30 fer fram Stubbamót 5-9 ára og fer mótið fram við Neðstu-lyftu. Velkomin í Skarðsdalinn

Fimmtudaginn 22. febrúar opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:30 SSW 5-10m/sek, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Hólsgöngubraut 2,5 km hringur tilbúin kl 13:00 Erum að vinna við að koma Hálslyftu í gang og opnum allar lyftur á morgun. Velkomin á skíði

Miðvikudaginn 21.febrúar lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00

Þriðjudaginn 20. febrúar opið/open 14-19

Það verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 SSW 7-15m/sek, frost 2 stig og léttskýjað og það mun birta til og lægja eftir kl 14:00. Færið er unnið harðfenni. Hólsgöngubraut verður troðin í dag og tilbúin kl 14:00 3 km hringur. Velkomin á skíði