Fréttir

Föstudaginn 13. janúar opið/open kl 14-18

Opið á morgun frá kl 10-16, færið er meiriháttar, harðpakkaður snjór og silkifæri. Veðrið á morgun verður frábært SA gola, frost 7 stig og léttskýjað Opið í dag frá kl 14-18. Veðrið er NW gola, frost 9 stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór, silkimjúkar brekkur.  Það  er ca 25 sm nýfallinn snjór, farið varlega utan við troðið það er víða stutt niður á grjót. Velkomin í fjallið

Fimmtudaginn 12. janúar opið/open kl 15-19

!!Nú er komið að því!! Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er logn, frost 10 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór, silkifæri í troðnum brekkum. Farið varlega utan við troðnar brekkur. Í troðnum brekkum erum við með ca 40-50 sm af snjó. Velkomin í fjallið.

Þriðjudaginn 10. janúar, opnum á fimmtudaginn kl 15:00

Lokað eins og er, en það er kominn snjór í brekkurnar sem er verið að ýta til og troða og það kemur meiri snjór í dag og á morgun þannig að við opnum svæðið á fimmtudaginn. Þetta lítur vel út nú í dag og næstu daga. Sjáumst hress

Mánudaginn 9. janúar lokað/closed

Svæðið er lokað eins og er, en það er að snjóa hjá okkur og er snjókoma í kortunum næstu daga þannig að allir eru mjög bjartsýnir á fjöllin séu að verða  fallega-hvít. Fylgist með okkur hér og á facebook

Sunnudaginn 8. janúar lokað/closed

Lokað eins og er, það er snjókoma í kortunum næstu daga. Fylgist með okkur hér og á facebook

Á þrettándanum er allt að gerast

Lokað eins og er, stefnum á að opna á sunnudaginn 8. janúar Það er gott veður í veðurkortunum næstu 6 daga, töluverð snjókoma og kuldi. BRAVÓ. Það snjóaði ca 15 sm í nótt og sumstaðar meira, það er verið að sópa þessu saman og troða. Fylgist með okkur í dag. Fjallamenn

Lokað eins og er/closed

Það er lokað eins og er vegna snjóleysis.  Við erum afar bjartsýnir eins og veðurspárnar sýna. Hvað finnst ykkur??? http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752 http://www.yr.no/place/Iceland/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur/long.html   Fjallamenn

Gleðilegt ár og takk fyrir gott skíðaár

Lokað eins og er vegna snjóleysis Sjáumst hress Fjallamenn