Fréttir

Sunnudaginn 22. janúar opið kl 11-16

Kl 12:15 Allir á skíði í dag frítt í fjallið og kakó fyrir alla, það er að fjölga í fjallinu. Gott veður  og gott færi. Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:45 NA 4-7m/sek, frostmark og smá éljagangur. Neðsta-lyfta og T-lyfta opnar. SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012  Frítt fyrir alla   Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007. Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna.  Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum ókeypis á skíði þennan dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 21. janúar verður lokað vegna veðurs og aðstæðna.

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs og aðstæðna, veðrið kl 10:25 NA 5-15m/sek, frostmark, töluverður éljagangur og skafrenningur. Einnig er veikleiki í snjóalögum sem þarf að fylgjast með og skoða betur. Ps. Göngubraut ca 3 km á Hólssvæði tilbúinn kl 13:00 gerð eftir troðara með spori. Stefnum á að opna á morgun sunnudaginn 22. janúar kl 11-16, nýjar upplýsinga um kl 10:00 í fyrramálið. Starfsmenn

Föstudaginn 20. janúar verður lokað.

Kl 13:30 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna mikillar vinnu við troðslu á svæðinu, það hefur snjóað ca 60-100 cm og er töluverð vinna við snjómokstur á Skarðsveginum. Veðrið kl 13:30 SV 2-4m/sek, frost 2 stig og alskýjað Stefnum á opnun á morgun kl 11-16, nýjar upplýsingar kl 09:00 í fyrramálið. Starfsmenn Kl 10:00 Skíðasvæðið er lokað eins og er, verið er að skoða snjóalög. Það er mikil vinna framundan í að troða brekkur það hefur bætt á ca 60-100 cm á svæðinu. Nýjar upplýsingar um stöðu mála kl 13:00 hvort við getum opna í dag. Starfsmenn  

Fimmtudaginn 19. janúar er lokað vegna aðstæðna.

Í dag fimmtudaginn 19. janúar verður lokað vegna veikra snjóalaga og leiðnda veðurs á svæðinu. Kl 13:00 er VSV 6-20m/sek, frost 3 stig og er töluverður skafrenningur. Við munum skoða stöðunna í fyrramáli og verðum með nýjar upplýsingar um kl 12:00 Starfsmenn skíðasvæðisins  

Miðvikudaginn 18. janúar lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 15:30 SV 5-20m/sek, frost 3 stig og er töluverður éljagangur og skafrenningur. Það jákvæða er að það bætir á snjóinn næsta sólahringinn. Opnum á morgun kl 16-20, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.  Starfsmenn

Þriðjudaginn 17. janúar lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 18. janúar kl 16-20. Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun. Starfsmenn Munum eftir þessum degi SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012  Frítt fyrir alla   Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007. Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna.  Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum ókeypis á skíði þennan dag.

Mánudaginn 16. janúar opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 11:45 WSW gola, hiti 4 stig og léttskýjað, færið er troðin þurr og rakur snjór í bland en mjög gott færi fyrir alla. Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km, brautin er létt og góð fyrir alla. Velkomin á skíði starfsfólk. Sjá hér að ofan hvaða svæði eru opin, grænt er opið en rautt er lokað svæði.

Sunnudaginn 15. janúar opið kl 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:00 vestan gola, frostmark og heiðskírt, færði er troðinn nýr snjór í bland við rakan. Sjá hér að ofan hvað svæði eru opinn í dag. Á skíðasvæðinu í gær voru um 300 manns takk fyrir komuna. Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km tilbúinn kl 10:00 Velkomin á skíða í dag, starfsmenn

Laugardaginn 14. janúar opið kl 12-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 12-16, veðrið kl 10:00 vestan gola, hiti 2 stig, rigning og þoka. Það er töluvert erfitt að vinna brekkur í þessu veðri þegar hiti og rigning fara saman. Færið er mjög blaut. Neðstasvæði opnaði kl 12 og T-lyftusvæði verður opnað kl 13 Byrjendakennsla verður við skíðaskálan í dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Föstudaginn 13. janúar lokað vegna hvassviðris.

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:15 SSW 2-20m/sek, hiti 10 stig og heiðskírt. Byrjendakennsla verður við skíðaskálan í dag. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 Veðurspá í dag og á morgun.  Sunnan 10-18 m/s. Lægir í nótt, en hvessir aftur um tíma í fyrramálið. Rigning með köflum, en úrkomulítið síðdegis á morgun. Hiti 3 til 8 stig, en kólnar eftir hádegi á morgun. Spá gerð: 13.01.2012 12:24. Gildir til: 15.01.2012 00:00. Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut. Hún er að hluta til í ljósum. Nýjar upplýsingar kl 15:00