Þriðjudaginn 17. janúar lokað

Dalurinn fagri
Dalurinn fagri

Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 18. janúar kl 16-20.

Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.

Starfsmenn

Munum eftir þessum degi

SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -  komum börnunum í snjóinn  -  sunnudagurinn 22. janúar 2012  Frítt fyrir alla

 

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007.

Stjórn Skíðasambands Íslands  hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.

Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna. 

Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum ókeypis á skíði þennan dag.