Fréttir

Laugardaginn 26. mars opið/open 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 13:00 NA gola, frost 2 stig við skíðaskálan 200m og 3 stiga frost  í 650 metrum og er éljagangur á svæðinu og er skyggnið ca 500-600 metrar. Búngulyftan opnar ekki í dag vegna lélegs skyggnis og ísingar. Við reynum að gera brekkur eins góðar eins og hægt er, það er hefur snjóað í nótt og er enn éljagangur.  Göngubraut verður tilbúin um kl 12 á Hólssvæði. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn  

Föstudaginn langa 25. mars opið/open 10-16

Það verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 14:30 NA 5-15m/sek, frost 1 stig og töluverður éljagangur. Troðinn þurr snjór í öllum brekkum.  Göngubraut verður tilbúin á Hólssvæðinu kl 12:00 Velkomin í fjallið Starfsmenn

Skírdagur 24. mars opið/open 10-16

Kl 14:30 eru komnir 550 gestir í dalinn góða. Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 14:30 NA 5-10m/sek, hiti 2 stig við skíðaskálan 200m en um frostmark við sleppingu á Búngulyftu 650m og er heiðskírt. Veðrið verður mjög gott í dag. Færið er troðinn þurr snjór og var allt troðið í gærkveldi þannig að brekkur eiga að halda nokkuð vel.  Hólabraut, Bobbbraut og Æfintýraleið við Neðstasvæðið og Pallur og Hólabraut er einnig á T-lyftusvæði. Gott að enda daginn með því að renna sér niður með skíðaveginum hægramegin, er troðin leið. Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur Velkomin á skíði í dag Starfsmenn

Miðvikudaginn 23. mars opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 12:30 logn, hiti 5 stig og léttskýjað, færið er troðinn vorsnjór en allar berkkur voru troðnar í gækveldi, það mun birta til uppúr hádeginu. Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Þriðjudaginn 22. mars opið/open 13-19

Flottur dagur að baki en um  220 manns komu í fjallið í dag. Morgundagurinn lítur mjög vel út og berið á ykkur sólarvörn nr 50,  opið á morgun frá kl 13-19. Sjáumst hress Fjallamenn. Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 12:00 logn, hiti 3 stig við skíðaskálan en hiti 1 stig við sleppingu á Búngulyftu og er léttskýjað, veðrið verður mjög gott hér í dag SA átt. Færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum, það er að kólna á svæðinu. Göngubraut tilbúin á Hólssvæðinu 3 km hringur. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn

Mánudaginn 21. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 15:00 NA gola, hiti 1 stig við skíðaskálan 200m en 1 stigs frost við sleppingu á Búngulyftu 650m og lítilsháttar éljagangur, færið er troðinn vorsnjór en þó er aðeins kaldara en verið hefur og á að kólna eftir því sem líður á vikuna. Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Sunnudaginn 20. mars lokað/closed

Það verður lokað í dag veðuraðstæður eru ekki góðar rigning og vaxandi vindur um hádegið af suðvestri. Þetta lítur miklu betur út á morgun en þá verður suðaustanátt. Svæðisstjóri

Laugardaginn 19. mars lokað/closed

Kl 10:30 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris SW 14-20m/sek  It will be closed today because of the wind 14-20 m / sec Það er lokað eins og er, stefnum á að opna kl 11:00 nýjar upplýsingar kl 10:30. Closed as plan to open at 11.  Ath. vindmælir er bilaður á svæðinu. Það er rigning á svæðinu núna kl 08:00 og SW 8-15m/sek en miðað við veðurkortin á að hætta að rigna á milli 10 og 11. Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur. Sjáumst hress Starfsmenn

Föstudaginn 18. mars opið/open 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 13:30 SSW gola, hiti 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn vorsnjór og er færið töluvert mjúkt enda búið að vera mikill hiti undanfarið en hafið engar áhyggjur það er góður snjór í öllum brekkum og fer að kólna í veðri eftir helgina. !!Nú er flott færi fyrir bretti og breið og góð skíði!!   Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur létur og góður fyrir alla. Starfsmenn

Fimmtudaginn 17. mars opið /open 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er SSV gola, hiti 6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn vorsnjór en hitastigið fór niður undir frostmark í nótt. Það er troðið Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið en það er ekki troðið Hálslyftusvæðið og Búngusvæðið sólin sér um að hita þær brekkur.  Velkomin á Sigló Starfsmenn