16.02.2016
Í dag verður lokað en opnum á morgun kl 13:00-19:00 og það verður opið á fimmtudaginn 18. feb kl 13-20
Nýjar upplýsingar kl 10:00
Svæðisstjóri
15.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:00 ASA gola, 4. hiti í við skíðaskálan (200m) en 1. stiga hiti við sleppingu á Búngulyftu (650m) og léttskýjað. Færið er troðunn þurr snjór.
Það verður SA átt í dag en útlit með morgundaginn er ekki gott SV rok en frá miðvikudegi til föstudags lítur veðrið betur út.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
14.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:00 er mjög gott norðan gola, frost 4-7 stig og er að birta til í dalnum. Færið er troðinn þurr snjór. Búið að troða 7 skíðaleiðir.
Flott veður og færi í dag
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
13.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er ASA 2-6m/sek, frost 3-6 stig og léttskýjað. Það verður flott veður í dag. Færið er troðinn þurr snjór en það snjóaði aðeins í nótt og er færið mjög gott.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum kl 12:00
Ath. vindmælir er bilaður.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
12.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er mjög gott kl 09:30 SSW gola, frost 5-7 stig og heiðskírt en það mun snúast ti NA áttar þegar líður á daginn og mun fylgja því éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór og það vantar ekki að færið er frábært.
Á svæðinu erum við með Hólabraut, Bobbbraut og Æfintýraleið.
Byrjendakennsla er um helgina og byrjar kl 13:00 báða dag, kennari er Salóme Rut og er kent í 30 mín lotum og er verð per lota kr 2.000.- skráning í síma 467-1806 og skard@simnet.is
Veðurútlit um helgina er mjög gott.
Göngubraut er klár í Hólsdalnum
Velkomin á Sigló
Starfsmenn
11.02.2016
Opið í dag frá kl 13-20, veðrið er mjög gott SSA gola, frost 1-3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, nú er flott skíðafæri utan við troðnar bautir.
Göngubraut tilbúin kl 14:00 á Hólssvæði ca 3 km hringur
Flottar aðstæður eru í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
10.02.2016
Opnum á morgun kl 13-20, föstudaginn kl 13-19 og um helgina opnum við kl 10-16 báða daga.
Opið í dag frá kl 15-19, náum ekki að opna í dag kl 13:00 eins og til stóð vegna mikillar vinnu við troðslu. Veðrið kl 10:30 austan gola, frost 2-5 stig en alskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og hefur bætt á snjóinn ca 30-50 sm, þannig að færið er mjúkt.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
09.02.2016
Það verður lokað í dag, opnum á morgun enda veðurútlit gott næstu daga.
Sjáumst hress
08.02.2016
Það verður lokað í dag, en stefnum á að hafa opið á morgun enda veðurútlit næstu daga mjög gott.
Nú eru allir að fara í vetrarfrí svo að skíðasvæðið verður opnað fyrr á daginn eða frá kl 13:00-19:00 miðvikudag-föstudag og á fimmtudaginn kemur verður opið frá 13-20.
Umsjónarmaður
07.02.2016
Opið verður í dag frá kl 11-16, veðrið kl 08:00 A 3-10m/sek, frost 1-3 stig og alskýjað en það er vaxandi vindur þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór.
Kl 14:00 Veðrið er að versna á skíðasvæðinu og er keyrð 1 lyfta.
Göngubraut verður tilbúin kl 12:00á Hólssvæði
Velkomin í fjallið