Fréttir

Föstudaginn 15. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er sunnan gola, frost 2-4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.  Fjallið er draumur núna og verður svo um helginna.   Göngubraut tilbúinn kl 15:00 á Hólssvæði. Minni á snjór um víða veröld, allir á skíði sunnudaginn 17. janúar. Sjáumst hress Starfsmenn

Fimmtudaginn 14. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er austan gola, frost 2-5 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór en það hefur snjóað ca 15 sm og hefur snjóða á svæðið ca 30 sm á síðustu tveimur sólahringum svo nú er flott færi í púðri á Búngusvæði og víðar. Veðurútlit er mjög gott næstu 4 daga, hægur vindur, frost og heiðríkja. Skíðakennsla fyrir byrjendur er um helgina og byrjar kl 13.00 og þarf að skrá sig í síma 893-5059 Göngubraut verður lögð á Hólssvæði um helgina. Velkomin á Sigló Starfsmenn

Miðvikudaginn 13. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 13.00 NNA 2-10m/sek, frost 2 stig og smá éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór, en það hefur snjóað ca 10-25 cm á svæðinu. Velkomin í fjallið Fjallamenn

þriðjudaginn 12. janúar lokað

Lokað í dag, opnum á morgun kl 15:00 Sjáumst hress Starfsmenn

Mánudaginn 11. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. veðrið er SSA gola, frost 5-8 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór.  Snjór um víða veröld er næsta sunnudag 17. janúar http://world-snow-day.com/en/wsd/Event_Locator/Iceland/Siglufjordur/World_Snow_Day_at_Skardsdalur Velkomin í fjallið  Starfsmenn

Sunnudaginn 10. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er SA gola, frost við skálan er 5 stig en við Búngulyftu topp er frostið 6,5 stig og er heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í dag. 6 skíðaleiðir tilbúnar. World snow day sunnudaginn 17. janúar  http://world-snow-day.com   Velkomin í fjallið Fjallamenn

Laugardaginn 9. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er austan gola, frost 1 stig við skálan (200m) en 4 stig við sleppingu á Búngulyftu (650m) og er heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór og er færið mjög gott. Flott veður og færi í Skarðsdalnum í dag. Skíðakennsla fyrir byrjendur í dag og á morgun, hefst kl 13:00. Panta í síma 893-5059 Velkomin í fjallið Fjallamenn

Föstudaginn 8. janúar lokað

Kl 14:00 það verður lokað í dag, veðrið er NA 5-18m/sek og stendur beint upp dalinn. Veðurútlit á mun betra á morgun og sunnudaginn.  Opnum á morgun kl 11:00. Erum að vinna allar brekkur, það hefur bætt aðeins á snjóinn ca 5-15cm. Umsjónarmaður

Fimmtudaginn 7. janúar lokað

Í dag verður lokað vegna hvassviðris. Það lítur vel út með morgundaginn og helgin framundan verður góð. Sjáumst hress Starfsmenn

Fimmtudaginn 7. janúar lokað

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Það verður strax breyting til batnaðar á morgun og helgin lítur mjög vel út. Nýjar upplýsingar á morgun kl 12:00 Sjáumst hress Starfsmenn