14.05.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 12:00 SSW gola, hiti 6 stig, alskýjað og það er lítilsháttar rigning. Færið er vorfæri.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
11.05.2015
Nú er komið að gleðilegri rest í Skarðsdalnum
Minni á næst verður opið 14-17. maí og Skarðsrennslið er laugardaginn 16. maí 3,5 km braut sem byrjar við Illviðrishnjúk og endar
við skíðaskála. Þetta rennsli er fyrir alla frá 10 ára aldri, bretti og skíði. Grill við skíðaskálan.
Um kvöldið verða tónleikar með Skúla Mennska á Kaffi Rauðku þar sem blúsinn verður í hávegum hafður, hefjast
tónleikarnir klukkan 22:00.
Fimmtudaginn 14. maí kl opið 10-16
Föstudaginn 15. maí opið kl 14-19
Laugardaginn 16. maí opið kl 10-16 Skarðsrennsli kl 13:00
Sunnudaginn 17. maí opið kl 10-16
Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn
10.05.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðið er mjög gott S-gola, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. S s flott
veður og færi í dag.
Hér er komið að gleðilegri rest
Minni á næstu opnun 14-17. maí og Skarðsrennslið er laugardaginn 16. maí 3,5 km braut sem byrjar við Illviðrishnjúk og endar við
skíðaskála. Þetta rennsli er fyrir alla frá 10 ára aldri, bretti og skíði. Grill við skíðaskálan.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
09.05.2015
Í dag verður lokað, það er ekki veður eins og þarf að vera á þessum tíma, en veðrið kl 08:00 er NA 6-12m/sek, frost 1 stig,
éljagangur og skyggnið er ekki gott. Það lítur miklu betur út með morgundaginn það verður bjart og fallegt veður, opnum kl 10 í
fyrramáli.
Starfsmenn
07.05.2015
Það verður opið um helginna laugardaginn 9. maí og sunnudaginn 10. maí.
Opið frá kl 11-16 báða daga.
Nánar auglýst síðar
Starfsmenn
04.05.2015
Nú er komið að gleðilegri rest í Skarðsdalnum.
Næst verður opið 14, 15,16,17 maí.
Minni á Skarðsrennslið 16. maí en það er létt keppni fyrir alla, börn frá 10 ára, unglinga og fullorðna. 3,5 km
risastórsvigsbraut. Verðlaun fyrir beztu tímana. Grillað við skíðaskálan.
Tónleikar
Skúli mennski og spilar mestmegnis blues. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00. Kaffi Rauðka laugardagskvöldið 16. maí.
Takið þessa daga frá og fjölmennum í Skarðsdalinn
Nefndin er að skoða með opnun um Hvítasunnuna s s 23-25 maí
Fjallamenn
03.05.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðið kl 12:00 ANA 3-10m/sek, frost 1 stig og éljagangur. Færið er troðinn þurr
snjór, færið er mjög gott og það er vetur á Sigló.
Það var flottur dagur í gær en um 270 manns komu á svæðið sem veður að teljast gott þegar maí mánuður er að
byrja.
Minn á Skarðsrennslið 16. maí risa-stórsvigs braut ca 3,5 km að lengd. Grill við skíðaskálan og þetta rennsli er fyrir alla
börn, unglinga og fullorðna
Opið verður 14.15.16.17 maí
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
02.05.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er mjög gott ASA gola, frost 1 stig og léttskýjað. Sú gula verður komin í Skarðsdalinn kkl
10:00.
Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og flott færi.
Nú í dag fer fram Fjallaskíðamót SSS og hefst keppni kl 12:00 og er gengið upp Hraunadalinn og farið gengum Siglufjarðarskarðið
síðan renna keppendur sér niður þar sem Búngubakki byrjar og ganga upp hann og út Grashólabrúnir og svig niður beint á móti
skíðaskálanum en þar er markið.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
01.05.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er bara gott SSA gola, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og er
færið eins og það gerist bezt.
Nú þurfa allir að mæta í Skarðsdalinn
Sjáumst hress
Starfsmenn
26.04.2015
Færið í fjallinu er bara frábært, troðinn harðpakkaður nýr snjór og er frostið í
snjónum ca 2-3 gráðu. Allar lyftur verða í gangi á morgun.
Lokað í dag og framundan er bara gott veður.
Við erum ekki hætt í Skarðsdalnum
Opið verður næstu dag:
Föstudaginn 1/5 kl kl 10-16
Laugardaginn 2/5 kl 10-16
Sunnudaginn 3/5 kl 10-16
Uppstigningardagur 14/5 kl 11-16
Föstudaginn 15/5 kl 14-19
Laugardaginn 16/5 kl 10-16
Sunnudaginn 17/5 kl 10-16 Síðasti opnunardagurinn þennan veturinn.
Mögulega verður opið um hvítasunnuhelgina, það fer eftir mætinguni 2. maí og 16. maí
Sjáumst hress Starfsmenn