Fréttir

Laugardaginn 28. mars opið kl 10-16

13:20 - Allar lyftur komnar í gang. Veðrið kl 13:30 SSW 2-10m/sek og 2 stiga frost. 12:00 - T-lyftan komin i gang. Kl 11:40 erum að keyra eingöngu neðstu-lyftu vegna SW vinds, en vonandi getum við sett fleiri lyftur í gang á eftir. Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 10:00 SW 2-17m/sek, frost 2 stig ogléttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Það verða hægir vindar í dag og mun verða éljagangur af og til í dag. Ath. Öll vasakort er hægt að fylla á hér t d kort sem þið notið í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli Velkomin í Skarðsdalinn

Föstudaginn 27. mars opið/open kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 09:30 WSW 4-10m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Veðrið í dag verður WSW átt og gæti élja annað slagið að öðru leiti lítur þetta mjög vel út, snjóalög eru frá einum meter og uppí 4 metra. Það er ágætis færi að skíða utanbrautar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 26. mars opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 09:00 WSW 4-7m/sek, frost 1 stig og léttskýjað og sólin að sýna sig inn á milli. Færið er troðinn þurr snjór, flott færi og flott veður. Páskafjörið byrjar strax mánudaginn 30. mars, skoðið dagskrána hér fyrir ofan. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 25. mars opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:30 WNW2-5m/sek, hiti 4 stig, lítilsháttar rigning og alskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en er þurrari eftir því sem ofar kemur, miðað við veðurspá á að létta til og kólna og vonandi gerist það seinnipartinn. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 24. mars opið kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 16:00 WNW 2-5m/sek, frost 2 stig en léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór.  Velkomin í fjallið Starfsmenn

23 mars lokað i dag

lokað i dag

22 mars opið i dag

Opið i dag frá 10 til 16:00, smá gola en annars fínasta veður og gott færi. Verið velkomin i fjallið.  

21 mars opið

21 mars opið frá 10:00 til 16;00 verið velkomin i fjallið  Ath. við fyllum á öll vasakort sem þið notið td í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli, munið eftir kortunum.

20 mars opið frá 14:00 til19:00

20 mars opið verður i dag frá 14:00 til 19:00 ljómandi gott veður og frábært færi verið velkominn. starfsmenn

19 mars opið frá 15:00 til 19:00

  opið í dag frá 15:00 til 19:00 ljómandi gott veður og frábært færi verið velkominn í fjallið . starfsmenn Ath. það er bilun í hitaskynjara í veðurstöð, það er hægt að sjá hitastig og snjódýpt inn á mælum veðurstofu, það eru tveir mælar annar er staðsettur við rætur Illviðrishnjúk í ca 785 metra hæð og hinn er á Grashólabrún í ca 640 metra hæð svipuð hæð og Búngulyfta endar. Hér til hægri er ljósmynd af Illviðrishnjúk smellið á myndina þá birtast mælarnir