04.04.2015
Alltaf gaman að leika sér af tölum en í dag var opið í 3 tíma og voru gestir um 90 en á laugardeginu fyrir
páska í fyrra fóru 1190 manns í gengum hliðið og margir þurftu frá að hverfa því miður. Það verður bara
blíða á morgun, sjáumst hress. Nánast skírdagsveður á morgun.
Kl 14:00 Lokað opnum á morgun kl 10-16
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:40 SSA 3-6m/sek, 4 siga hiti og töluverð rigning. Takið daginn snemma það fer að hvassa og rigna þegar
líður á daginn.
Allar brekkur troðnar og er snjórinn þurrari eftir því sem ofar kemur.
Göngubraut er klár í Hólsdalnum
Ath. öll vélsleða umferð er bönnuð á skíðasvæðinu og er mikil umferð af skíðafólki sem rennir sér
meðfram Skarðsveginum, þar eiga engir sleðar að vera. Þessi leið er troðin fyrir skíðafólk.
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
03.04.2015
Tveir góðir dagar að baki, í gær komu í Skarðsdalinn 650 manns og töluverður fjöldi var á gönguskíðum í
Hólsdalnum og nú í dag voru gestir 750 manns og fjöldi manns var við aðra útivist hér á Sigló. Opnum kl 10-16 á morgun.
Opið í dag frá kl 10-16. Sama veður blíðan logn, frost 1 stig og það er að birta til. Sú gula er komin upp.
Færið er troðinn þurr snjór og svo er flott færi í ótroðnu.
Göngubraut tilbúinn í Hólsdalnum.
Velkomin á skíði
Starfsmenn.
02.04.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er bara frábært SA gola, frost 6 stig, heiðskírt og sólin baðar okkur í dag.
Færið er troðinn þurr snjór og er meiriháttar færi bæði troðnum brautum og utan við.
Göngubraut er tilbúinn á Hólssvæði
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
01.04.2015
Horfið hér til hægri á myndbandið, það kemur okkur öllum í skíðagírinn
Upplýsingar um svæðið næstu daga.
Neðstasvæðið: Troðinn brekka meðfram lyftu, Æfintýraleið, Bobbbraut, Leikjabraut og pallur.
T-lyftusvæði: Troðinn brekka meðfram lyftu, Bobbbraut vestan við brekku og austan við lyftu troðinn leið niður að mastri nr 2 á T-lyftu.
Hálslyftusvæði: Troðinn brekka meðfram lyftu og frískíðun hægramegin við lyftu.
Búngulyftusvæði: Troðinn Búngubakki, Miðbakki niður að Hálslyftu, frískíðun norðan við og meðfram Búngulyftu
og frískíðun á milli bakka. Ath Innrileið verður ekki troðinn. Það er flottur nýr snjór á svæðinu.
Göngubraut troðin í Hólsdalnum.
Smá upplýsingar um hvað Skarðsdalurinn hefur uppá að bjóð. Nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramáli. Sjáumst hress
á morgun.
Velkomin í Fjallabyggð
01.04.2015
Kl 13:40. Opnum kl 15:00-19:00 veðrið er að ganga niður. Veðrið kl 16:00 NNA 3-10m/sek, éljagangur og frost 6 stig, en skyggnið er erfitt og er birtan
að koma og fara.
Það er verið að moka veginn með stórum blásara (farið varlega)
Setjum Neðstulyftu og T-lyftu. Það hefur verið mjög erfitt að vinna berkkurnar vegna veðurs.
Göngubraut verður tilbúinn kl 16:00 á Hólssvæði
Velkomin á skíði
Starfsmenn
Það er lokað eins og er, það er ekkert skyggni eins og er. töluverður éljagangur og er norðan vindur 6-15m/sek og er frost 6 stig.
Miðað við veðurspá á að lægja birta til eftir hádegið.
Nýjar upplýsingar kl 14:00
Starfsmenn
31.03.2015
KL 10:30 Það verður lokað í dag, það er éljagangur og skafrenningur og er skyggnið ekki gott. Lítur strax betur út á morgun.
Nýjar upplýsingar kl 10 í fyrramálið.
Erum með opnun í skoðun, veðurspáin er aðeins að stríða okkur fyrir daginn í dag, en veðurútlit eftir daginn í dag er mjög
gott.
Svona lítur veðurspá dagsins út: Vaxandi norðvestanátt með morgninum, 8-15 m/s eftir hádegi og éljagangur. Norðan 5-10 á morgun
og lítilsháttar él. Frost 3 til 9 stig.
Það koma nýjar upplýsingar kl 12:00
Starfsmenn
30.03.2015
KL 18:00 Höfum lokað í dag vegna mikillar blindi og skafrennings.
Ath. Það eru lokaðar allar brekkur norðan við Búngusvæði og dalurinn innan við Búngusvæðið einnig vegna
snjóflóðahættu.
Ath. það er búið að loka Hálslyftu og Búngulyftu vegna skafrennings og mikilar blindu.
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 16:40 NV 5-10m/sek, frost 4 stig og er töluvert blinda hjá okkur. Færið er troðinn nýr snjór,
það hefur snjóað ca 25-50 cm síðan í gær.
Troðið verður Neðstasvæðið, T-lyftusvæði og Hálslyftusvæðið en Búngusvæðið verður boðið upp á
að skíða í púðri.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
30.03.2015
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 10:30 austan gola, frost 4 stig og það er að létta til já okkur. Færið er troðinn nýr
snjór, það hefur snjóað töluvert hjá okkur ca 25-50 cm síðan í gær og er töluverð vinna við að moka til og troða.
Veðurspá dagsins: Norðan 8-13 og él. Hægari og úrkomulítið síðdegis. Aftur norðan 8-13 og él upp úr hádegi
á morgun. Frost 1 til 8 stig.
Erum með göngubraut í skoðun og vonandi getum við lagt hana þegar líður á daginn.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
29.03.2015
Kl 13:30 Höfum lokað Hálslyftu og Búngulyftu vegna snjókomu og skafrennings.
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 13:30 ANA 4-10m/sek, frost 4 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór,
það hefur snjóað ca 10-15cm. Tróðum eingöngu 2 neðstusvæðin en efrisvæðin 2 líta mjög vel út þar er ca 10-20 cm
nýr snjór ofaná þeim, flott færi fyrir frískíðun.
Ath. gerður verður göngu hringur á Hólssvæði frá og með mánudeginum 30. mars og til annan í páskum, en snjór er ekki
mikill svo að við munu gera göngubraut með snjósleða.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn