Föstudaginn langi opið kl 10-16

Tveir góðir dagar að baki, í gær komu í Skarðsdalinn 650 manns og töluverður fjöldi var á gönguskíðum í Hólsdalnum og nú í dag voru gestir 750 manns og fjöldi manns var við aðra útivist hér á Sigló. Opnum kl 10-16 á morgun.


Opið í dag frá kl 10-16. Sama veður blíðan logn, frost 1 stig og það er að birta til. Sú gula er komin upp. 

Færið er troðinn þurr snjór og svo er flott færi í ótroðnu.


Göngubraut tilbúinn í Hólsdalnum.


Velkomin á skíði

Starfsmenn.