Fréttir

Laugardaginn 26. desember opið kl 12-16

Gleðilega hátíð það verður opið í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 10:00 er sunnan gola, frost 3-4 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór og er færið töluvert mjúkt. Þessu seinkar öllu hjá okkur vegna aðstæðna það er töluverður mokstur á svæðinu og vonandi getum við sett tvær lyftur í gang í dag, einnig seinkar snjómokstri til okkar. Fylgist með okkur á vefmyndavélinni. Göngubraut tilbúin á Hólssvæði. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Opnum 26. desember

Nú tökum við okkur smá jólafrí og opnum á annan í jólum laugardaginn 26. desember. Gleðileg skíðajól og sjáumst hress Fjallastrákarnir

Þriðjudaginn 22.desember opið

Opið í dag frá kl 14-18. Veðrið er mjög gott SSW gola, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðunn þurr snjór. Flott færi og flott veður. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Mánudaginn 21. desember opið

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er mjög gott, austan 2-7m/sek, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór en það hefur bætt aðeins í brekkurnar svo að færið er töluvert mjúkt.  Erum að stefna á að opna Hálslyftu á morgun og vonandi getum við opnað Búngusvæðið á milli hátíða. Það hefur því miður lítið fest snjó í efrihlutanum vegna vinds og höfum við þurft að moka mikið í efrihlutanum, en það hefur verið mun auðveldara að koma inn tveimur neðstu-svæðunum. Opið yfir jólin 26. des 11-16, 27. des 11-16, 28. des 13-18, 29. des 13-18, 30. des 13-18, 31. des 11-14 og 2. jan 11-16. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Sunnudaginn 20 desember lokað

Í dag verður lokað. Opnum á morgun kl 13-18

Laugardaginn 19. desember opið

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:00 logn, frost 3 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í dag. Takið daginn snemma það fer að hvessa seinnipartinn í dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 18. desember opið

Opið í dag frá kl 16-19.Veðrið kl 10:30 NA 4-8m/sek, frost 6 stig og smá éljagangur en um kl 15 verður orðið bjartara og engin éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór og hefur bætt aðeins í brekkurnar. Skíðakennsla fyrir byrjendur kl 12-16 á morgun laugardaginn 19. des    Opið yfir jólin 26. des 11-16, 27. des 11-16, 28. des 13-18, 29. des 13-18, 30. des 13-18, 31. des 11-14 og 2. jan 11-16.   Sjáumst hress í dag. Starfsmenn

Miðvikudaginn 16. desember opið

Opið í dag frá kl 16-19, veðrið er mjög gott SSW gola, um frostmark og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni mjög gott færi, það er búið að brjóta brekkkurnar mjög vel upp. Nú er um að gera að nýta þennan dag mjög vel því veðurútlit á morgun er ekki gott. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 15. desember lokað

Það  verður lokað í dag . Veðurútlit er sunnan 8-15 og slydda þegar líður á daginn. Opnum aftur miðvikudaginn 16. desember Sjáumst hress Starfsmenn

Sunnudaginn 13. desember opið

Opið í dag frá kl 11-16. Það er sama veðurblíðan í dag S-gola, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór.  Flott veður og flott færi. Byrjendakennsla verður helgina 19 og 20 desember og hefst báða dag kl 12:00 og er kent í 30 mín lotum og er verð kr 1.000.- Það þarf að skrá sig með því að hringja í síma 893-5059. Kennari er Salóme Kjartnasdóttir.  Velkomin í fjallið Starfsmenn