Fréttir

Föstudaginn 15. apríl opið 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 12:00 logn, frost 1 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni. Frostið hér í nótt fór í 9 stig þannig að það er harðfenni utanbrautar en lofthiti í dag verður á bilinu 1-4 stig. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 14. apríl opið 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:00 ANA 5-12m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað, færið er vorfæri. Það var um 2 stiga frost í nótt og hitinn í dag verður um 1-3 stiga lofthiti en töluvert heitara í sólinni. Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið troðið að hluta en engin troðsla í efrihlutanum. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 13.apríl opið 14-19

Kl 17:40 höfum við lokað vegna vinds. Það lítur mjög vel út á morgun opnum kl 14:00 Opið í dag frá kl 14-19, verðrið kl 15:00 vestan 4-14m/sek, hiti 8 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór en það mun mýkjast þegar líður á daginn. Flott utanbrautarfæri í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Þriðjudaginn 12. apríl opið kl 10-13

Opið í dag frá kl 10-13 og svo opnum við á morgun miðvikudaginn 13. apríl kl 14-19 Sjáusmt hress á morgun Starfsmenn

Mánudaginn 11. apríl opið kl 15-19

Ath. það verður opið á morgun frá kl 10-12 Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:00 NW gola, hiti 3 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór,en það er aðeins nýr snjór á svæðinu. Göngubraut verður tilbúin kl 13:00 Velkomin á skíði í dag Starfsmenn

10 april opið frá 10 til16

10 april opið i dag frá 10 til 16 geggjað veður flott færi verið velkominn kv starfsmenn

Opið i dag 9 april frá 10 til 16

opið i dag 9 april frá 10 til 16 verið velkominn i fjallið kv starfsmenn

Föstudaginn 8. apríl opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:45 austan gola, hiti 2 stig og léttskýjað. Troðið er neðstasvæðið og hluti af Búngusvæðið aðra brekkur eru nokkuð góðar og halda brekkur nokkuð vel en að sjálfsögðu mýkjast brekkurnar þegar líður á daginn. Veðurspá dagsins: Austan átt og verður hiti 0-8 stig, norðlægar og bjart með köflum á morgun og stöku él á annesjum. Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Fimmtudaginn 7. apríl opið kl 09:30-11:30 og 14-19

Opið í dag frá kl 09:30-11:30 og 14-19, veðrið kl 14:30 NNW gola, hiti 4 stig og alskýjað en það er að létta til og verður hér bjart og fallegt í dag. Færið er vorsnjór en það var 2-3 stiga frost í nótt en sólin mun mýkja færið þegar líður á daginn. Verðum með opið frá kl 09:30-11:30 fyrir 1-4 bekk Grunnskóla Fjallabyggðar og er opið svæðið fyrir alla, en við opnum eingöngu 2 lyftur á þessum tíma. Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði en spor er eftir snjósleða. Velkomin á skíði Starfsmenn 

Miðvikudaginn 6. apríl opið /open kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:00 ASA 1-5m/sek, hiti 2 stig og léttskýjað. Færið er vorfæri. Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur gerð með snjósleða. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn