Fréttir

Það er lokað svæðið vegna snjóleysis

Það er lokað svæðið vegna snjóleysis, en vonandi fer þetta að gerast. Opnum um leið og hægt er. Fylgist með okkur hér og á facebook  There is no snow on the ski area, area is closed.  We open as soon as possible. Fjallamenn

Svæðið verður lokað í dag

Við verðum að hafa lokað í dag vegna of lítils snjós, það er mjög mikið af grjótum sem koma upp úr brekknni þegar búið er að troða. Við reynum næst.

Opið frá/open from kl 12-16

Gleðileg jól.  Loksins, loksins er opið og verður opið í dag frá kl 12-16 og verður eingöngu opin neðstalyfta, það er ekki mikill snjór á svæðinu farið varlega.  Veðrið kl 09:30 NW gola, frost 2 stig en alskýjað, fæerið er troðinn þurr snjór.   Verð fyrir þennan dag er eingöngu kr 500.- Það vantar enn mikinn snjó á svæðið og stefnum að því að reyna að koma inn T-lyftusvæði inn sem fyrst, það þarf að færa til mikið af snjó svo það komist inn. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Gleðileg jól

Gleðileg jól sjáumst á annan í jólum. Fjallamenn

Svæðið opnar annan í jólum

Verið tilbúin á annan í jólum þá setjum við í gang, það mun snjóa töluvert á svæðinu næstu daga. Allt á kaf það er svo gaman 40mm úrkoma á dag. Nú líður okkur Fjallamönnum mjög vel. Opnun næstu daga: Annan í jólum kl 11-16 27-30 des       kl 11-17 Gamlársdag     kl 11-15 Nýársdag         Lokað 2. janúar         kl 11-17 Fjallamenn

Allt að gerast

Mögulega getum við opnað svæðið á þorláksmessudag og það lítur mjög vel út með að opið verði frá 26-31 des, það mun snjóa hjá okkur yfir jólin miðað við veðurkortin. Fylgist með okkur hér og á facebook

Það er snjókoma í kortunum

Það er snjókoma í kortunum og vonandi gengur það eftir og um leið og hægt verður opnar svæðið. Opnun um jól og áramót er svo: Þorláksmessu kl 11-15 Aðfangadag    kl 11-14 Annan í jólum kl 11-16 27-30 des       kl 11-17 Gamlársdag     kl 11-15 Minni á vetrarkortasöluna í Bakaríinu fullorðnir kr 23.000.- börn 8.000.- og framhalds/háskólanemar kr 12.000.- þetta tilboð gildir til 24. des. Sjáumst hress

Vetrarkort tilboð til 24. desember

Tilboð á vetrarkortum stendur til 24. desember. Minni ykkur á að nýta frístundastyrkinn 2016 fyrir áramót.  Verð:  Fullorðin kr 23.000.- í stað 25.000.-  Barn 9-17 ára kr 8.000.- í stað 10.000.-  Háskóla/framhaldsskólanemar kr 12.000.- í stað 15.000.-  Vetrarkortin eru til sölu í Bakaríinu og verða það til 31. des einnig verða til sölu dagskort í Bakaríinu í allan vetur.  Hægt er að bóka kort með því að senda tp á skard@simnet.is og leggja inn á 565-26-640908 kt 640908-0680  Nú er um að gera að drífa sig og kaupa á lága verðinu.   Hvíta gullið er að koma kl 15:30 hefur snjóað ca 10 sm og er 1 stig frost á svæðinu.

Minni á kortasöluna

Tilboð á vetrarkortum stendur yfir til 11. desember. Minni ykkur á að nýta frístundastyrkinn 2016 fyrir áramót. Verð: Fullorðin                                 kr 20.000.- í stað 25.000.- Barn 9-17 ára                         kr  8.000.- í stað 10.000.- Háskóla/framhaldsskólanemar kr 12.000.- í stað 15.000.-  Vetrarkortin eru til sölu í Bakaríinu og verða það til 31. des einnig verða til sölu dagskort í Bakaríinu í allan vetur. En því miður verður lokað um helgina vegna þess að hvíta gullið er ekki alveg að koma. Fjallamenn   

Það er lokað vegna snjóleysis

Hvíta gullið lætur standa á sér, en það kemur fyrir rest. Fylgist með okkur hér og á facebook Minni á vetrarkortasöluna í Aðalbakaríinu þar sem er rjúkandi kaffi og brakandi brauð.