05.04.2016
Það verður lokað í dag, opnum á morgun kl 15:00-19. Veðurútlit er mjög gott næstu daga.
Sjáumst hress
04.04.2016
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 16:30 logn, hiti 1 stig og þoka og sól að takast á í efrihlutanum (sól á toppnum), færið er unnið harðfenni og er troðið neðstasvæðið, t-lyftusvæðið, búngubakki og stálmasturbakki.
Það var troðin göngubraut í gær á Hólssvæði og er hún tilbúin í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
03.04.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:00 W gola, hiti 2-3 stig og léttskýjað og sú gula er að sýna sig og verður svona flott veður í dag, það er troðinn þurr snjór og var Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið troðið en Hálslyftusvæði og Búngusvæði ekki, brekkur eru mjög góðar þar og mun sólin mýkja þær en það var 2 stiga frost í nótt.
Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur
Velkomin á skíði á Sigló
Starfsmenn
02.04.2016
Á morgun opnum við kl 10-16 og veðrið verður mjög gott, sjáumst hress.
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 11:00 er mjög gott SA gola, hiti 3 stig við skíðaskálan 200m og frost 1 stig við sleppingu á Búngulyftu 650m og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og var allt troðið í gær.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
01.04.2016
lokað verður i dag 1 apríl vegan hvassviðris. Dagurinn á morgunn lítur mun betur út og munum við opna kl 10 á laugardaginn 2 april . kv starfsmenn
31.03.2016
opið i dag frá 15 til 19 færið er frábært verið velkominn
30.03.2016
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið er bara flott sunnan gola, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór s s frábært veður og færi í dag.
Göngubraut tilbúinn kl 13:00 á Hólssvæði 3 km hringur.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
Að gefnu tilefni er bent á að öll umferð snjósleða bönnuð á skíðasvæðinu þó svæðið sé ekki opið. Skíðagestir eiga að fá að njóta svæðisins eftir flotta snjókomu.
Svæðisstjóri
29.03.2016
Að gefnu tilefni er öll umferð snjósleða bönnuð á skíðasvæðinu þó svæðið sé ekki opið. Skíðagestir eiga að fá að njóta svæðisins eftir flotta snjókomu.
Svæðisstjóri
Skíðasvæðið er lokað í dag opnum á morgun miðvikudaginn kl 15-19
Innilegar þakkir til ykkur sem heimsótu okkur í dymbilvikunni en 2755 gestir komu á skíðasvæðið þessa daga.
Minni á að skíðasvæðið verður opið til 1. maí og tvær langar helgar í maí 5-8 maí og 14-15 maí.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum góða.
28.03.2016
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 09:30 NA gola, frost 6 stig og lítilsháttar él en birtir vel á milli, veðrið verður mjög gott í dag svo nú er um að gera ljúka Páskunum með stæl í Skarðsdalnum. Færið er troðinn nýr snjór (silkifæri) og er búið að troða allar brekkur nema Búngubakkan og Miðbakki ætlum við að bjóða upp á frískíðun í púðursnjó.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði kl 10:00
Velkomin á skíði
Starfsmenn
27.03.2016
Gleðilega páska
Það verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 12:00 er NA 5-10m/sek, frost 4 stig og það verður svona veður í dag, en það er meiri vindur á Búngusvæði og verður það ekki opnað í dag. Það hefur snjóað ca 20-30 cm sumstaðar meira á svæðinu þannig að það er troðinn nýr snjór. það lítur út fyrir það að hálsa-lyftan verði opnuð um 1 leytið.
Páskaeggjamót fer fram kl 13:00 fyrir 10 ára og yngri við Neðstasvæði.
Göngubraut verður tilbúin kl 12:00
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn.