Fréttir

Þriðjudaginn 20. apríl opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá 09:30-12:00 á svæðinu hjá okkur eru grunnskóla krakkar úr 1-6 bekk um 80 krakkar og stóðu þau sig mjög vel, síðan opnum við aftur frá kl 15-18, veðrið er mjög gott logn, frost 1 stig og alskýjað, færið er mjög gott troðinn nýr snjór, Það verður lokað á morgun 21. apríl og næst verður opið fimmtudaginn 22. apríl sumardaginn fyrsta frá kl 11:00-16:00 og opið að sjálfsögðu á  föstudaginn, laugardaginn og sunnudag, síðasti opnunardagur er sunnudaginn 2. maí. Starfsfólk  

Mánudaginn 19. apríl opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14:00-18:00, veðrið er mjög gott NA 4-8m/sek, 5 stiga frost og alskýjað, færið er einnig mjög gott troðinn nýr snjór. Velkomin í fjallið starfsfólk

Sunnudaginn 18. apríl opið

Skíðasvæðið opnar í dag kl 10 og verður opið til kl 16, veðrið kl 08:30 SV 4-7m/sek, um frostmark og hálfskýjað, færið er troðinn þurr snjór mjög gott færi fyrir alla. Velkomin í fjallið starfsmenn

Laugardaginn 17. apríl opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:30 Norðan gola, frost 5 stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla, nú er um að gera að drífa sig á skíði, nú fer hver að verða síðastur að skíða á þessu tímabili, síðasti opnunar dagur verður 2. maí. Velkomin á skíði

Föstudaginn 16. apríl lokað v/veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, við opnum á morgun kl 10:00, nánari upplýsingar á morgun kl 09:00. Starfsmenn

Fimmtudaginn 15. apríl opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá 09:30-12:00, við verðum því miður að loka svæðinu í dag vegna veðurs, stefnum á opnun á morgun kl 14, nýjar upplýsingar um kl 12:00 á morgun föstudaginn 16. apríl. Starfsmenn  

Miðvikudaginn 14. apríl lokað v/veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag það er of hvasst SV 7-10m/sek og fer í 18-25m/sek í hviðum, við opnum á morgun kl 10:00 það eru að koma í fjallið á morgun gunnskóla krakka úr 7-10 bekk, nánari upplýsingar á morgun kl 09:00 Starfsfólk  

Mánudaginn 12. apríl lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag vegna viðgerðar á neðstu-lyftu en hún verður komin í lag á morgun um kl 17:00 og við opnum á miðvikudaginn kl 15-19 og skólakrakkar, 1-6 bekkur verða á skíðum frá kl 09:30 til 12:00 sjáumst hress í fjallinu á miðvikudaginn. Starfsfólk.  

Sunnudaginn 11. apríl lokað v/veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 10:00 SV 8-10m/sek og fer upp í 15-20m/sek í hviðum, næsta opnun hjá okkur verður á miðvikudaginn 14. apríl vegna bilunar í gírboxi á neðstu-lyftu. Starfsfólk skíðasvæðisins vil þakka öllum þeim krökkum og foreldrum sem heimsótu okkur nú helginna frá Akureyri, Reykjavík og Sauðárkróki og að sjálfsögðu heimafólki. Skíðasvæði hefur verið opið í 82 daga frá því að við opnuðum í haust. Starfsmenn skíðasvæðisins  

Laugardaginn 10. apríl opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 SA-gola, hiti um 4 stig og smá rigning, færið er troðinn blautur snjór ágætis færi fyrir alla, við keyrum allar lyftur, hjá okkur í fjallinu eru margir góðir gestir stór hópur frá Akureyri, eining eru krakkar frá ÍR í Reykjavík og Sauðárkróki og fleiri góðir gestir. Velkomin í fjallið starfsfólk