Fréttir

Mánudaginn 29. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá 14-19, veðrið kl 09:30 norðan 5-9m/sek, frost um 6 stig, smá éljagangur og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór, við keyrum eingöngu Neðstu-lyftu og T-lyftu. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Sunnudaginn 28. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er ágætt N-gola, frost um 6 stig, snjóél og er nokkuð blint. færið er troðinn nýr snjór frábært færi fyrir alla og allar brekkur klárar. Göngubraut verður tilbúinn um kl 14 í Skarðsdalsbotni. Nú líður að Páskafjöri hér í Skarðinu, brettaleikjabraut, svigleikjabraut, giljabraut og meiriháttar aðstæður á Búngusvæði fyrir brettaskíðun og alla. Velkomin í fjallið starfsmenn.

Laugardaginn 27. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er NA 4-7m/sek, frost 6-7 stig og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór, við opinu til að byrja með Neðstu-lyftu og T-lyftu, en Búngusvæði opnum við á milli kl 11 og 12, nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta dagsins. Velkomin á skíði starfsmenn

Föstudaginn 26. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið er NA 8-12m/sek og 12-16 m/sek í hviðum, færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi fyrir alla, við opnum eingöngu Neðstu-lyftu, það er of hvasst á T-svæði og Búngusvæði, en það eru horfur á betra veðri á morgun. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 25. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið er NNA 5-8m/sek, smá éljagangur og frost um 1 stig, færið er troðinn þurr snjór. Við opnum eingöngu Neðstu-lyftu, verið er að vinna við að gera allar brekkur klárar á T-lyftusvæði og Búngusvæði. Velkomin í fjallið Starfsfólk

Miðvikudaginn 24. mars lokað

Skíðasvæði verður lokað í dag vegna vinnu á svæðinu, það hefur snjóað töluvert á öllu svæðinu og þurfum við tíma til að vinna allt svæðið. Opnum á morgun kl 15-19 Starfsmenn  

Þriðjudaginn 23. mars lokað v/veðurs

Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs, það er NA 12-15m/sek og 20m/sek í hviðum, en þetta lítur ágætlega út það á að lagast veðrið þegar líður nær helginni og verður mikið Skíðafjör um Páskana í Skarðsdalnum. Stefnu á að opna á morgun kl 15-19, nýjar upplýsingar um kl 12:00 Starfsfólk

Mánudaginn 22. mars lokað v/veðurs

Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs. það er hvass ANA vindur á svæðinu, við stefnum á að opna svæðið á morgun kl 15-19 ef veður verður í lagi. Nýjar upplýsingar um kl 12:00 á morgun. Starfsfólk skíðasvæðisins  

Sunnudaginn 21. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 A 4-8m/sek, frost um 3 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór frábært færi fyrir alla, í dag fer fram Unglingameistarmótið á skíðum, keppni hefst með svigi 13-14 ára kl 09:00 og svo er haldið áfram fram eftir degi , 15-16 um kl 12:30, göngukeppni hefst kl 11:00, það eru um 130 keppendur Unglingameistarmótinu og svo eru um 200-300 manns á  skíðum við frábærar aðstæður. Velkomin í fjallið. Starfsfólk

Laugardaginn 20. mars opið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 4 stig og alskýjað, færið er troðinn nýr snjór á öllu svæðinu frábært færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar. Göngubraut verður  tilbúinn sunnan við Skógrækt kl 14 og keppnisbraut í Skarðsdalsbotni kl 10:00. Keppni á UMÍ í stórsvigi drengja og stúlkna í 15-16 ára flokki hefst kl 09:45 og keppni í göngu hefst kl 11:00 Velkomin í fjallið Starfsfólk