Fréttir

Laugardaginn 16. febrúar opið kl 10-16

Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16. Veðrið kl 15:40 ANA 2-5m/sek, frost 3 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Göngubraut á Hólssvæði ca 3-4 km hringur tilbúinn kl 13:00 Flott veður og meiriháttar færi Skíðasvæðið verður opið í næstu viku (18/2-24/2) kl 13-19 virka daga og um helginna kl 10-16  Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um helginna. (16 og 17 febrúar) Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Föstudaginn 15. febrúar opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 13:00 NA 3-6m/sek, frost 2 stig en skyggni er ekki mjög gott, en á að batna þegar líður á daginn og þegar ljósin fara að njóta sýn. Færið er troðinn nýr snjór.  Minni á skiptihelgi vetrarkortshafa 16 og 17. febrúar. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar) Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 14. febrúar lokað í dag

Kl 13:30 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegan veðurs og aðstæðna. Veðrið kl 13:30 NA 5-14m/sek, 0 stig, slydduél og mjög lélegt skyggni.   Veðrið kl 11:00 NA 6-14m/sek, 0 stig, slydduél og skyggni ekki gott eins og er. Nýjar upplýsingar um kl 11:00 á morgun föstudaginn 15. febrúar, veðurútlit er mun betra næstu 4-5 daga, austan áttir. Starfsmenn

Miðvikudaginnn 13. febrúar opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:30 NA 3-6m/sek, hiti 2 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni.  Minni á skiptihelgi vetrarkortshafa 16 og 17. febrúar. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar) Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Þriðjudaginn 12. febrúar er lokað

Í dag þriðjudaginn 12. febrúar er lokað, opnum á morgun miðvikudaginn 13. febrúar kl 15:00 Nýjar upplýsingar um kl 12.00 á morgun. Starfsmenn Minni á skiptihelgi vetrarkortshafa 16 og 17. febrúar.  Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar) Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.

Mánudaginn 11. febrúar opið kl 15-19

Í dag mánudaginn 11. febrúar verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 11:30 logn, hiti 2 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni.  Þá er komið að þriðju skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar)  Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Sunnudaginn 10. febrúar opið 10-16

Kl 10:30 höfum við lokað Búngusvæði, þar er of hart eins og er. Tróðum allt í gærkveldi og töldum að hitinn myndi mýkja allar brekkur en það gerðist ekki. Erum að vinna í því að mýkja brekkurnar. Skíðasvæðið verður opið í dag frá  kl 10-16.  Veðrið kl 09:00 SA gola, hiti 6-8 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni. Það er ekki hægt að fá betra veður og færi. Þetta hressir mann af líkama og sál !!! http://www.youtube.com/watch?v=VP6xHczSnMg Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 3 km hringur. Velkomin á skíði  Starfsmenn  

Laugardaginn 9. febrúar opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16. Enn einn góður dagur, dagur nr 55 í vetur, veðrið kl 13:50 logn, hiti 6-8 stig, léttskýjað og er allur að létta til. Færið er troðinn þurr og rakur snjór í bland. Frábært veður og flott færi Núna kl 14:00 eru komnir um 260 gestir inn á svæði. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km hringur Velkomin á Siglufjörð Starfsmenn

Föstudaginn 8. febrúar opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 10:20 WSW 2-4m/sek, 2. stiga frost og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Flott færi og flott veður. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km léttur hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Fimmtudaginn 7. febrúar opið kl 15-20

Kl 17:15 er komin SV 8-18m/sek og við höfum lokað T-lyftu. Eingöngu Neðsta-lyfta keyrð. Skíðasvæðið er opið í dag frá  kl 15-20. Veðrið kl 17:15 SV 8-17m/sek,  0 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Veðurspá næstu daga er mjög góð fyrir okkar svæði. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km létt braut fyrir alla. Velkomin á Skíði Starfsmenn