Fréttir

Þriðjudaginn 26. febrúar lokað

Lokað í dag þriðjudaginn 26. febrúar, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 27. febrúar kl 15-19 Nýjar upplýsingar kl 12:00 Starfsmenn skíðasvæðisins

Mánudaginn 25. febrúar er lokað

Í dag mánudaginn 25. febrúar verður lokað vegan aðstæðna. Nú kl 12:00 er mikill hiti og rigning þannig að við náum ekki að vinna brekkurnar, okkur vantar frost sem kemur á miðvikudaginn. Veðrið kl 10:00 SSW 2-13m/sek og 18 m/sek í hviðum, lítilsháttar rigning og hiti 10 stig. Ný myndbönd komin inn hér til hægri á síðunni, endilega að skoða. En og aftur langar okkur starfsmönnum skíðasvæðisins að þakka þeim fjölmörgu sem hafa heimsótt skíðasvæðið á síðustu 7 dögum en gestir inn á svæðið á þessum dögum eru 2 þúsund. Svona til gamans eru gestir inn á svæðið frá 1. des og til 24. feb komnir í 7 þúsund. Velkomin aftur Starfsmenn

Sunnudaginn 24. febrúar opið kl 10-16

Fallegur morgun í Skarðsdalnum, fjöllin bíða eftir ykkur gestir góðir og sólin dansar við Illviðrishnjúkinn. Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 12:30 vestan gola, hiti 5 stig, léttskýjað, sól og skyggnið er mjög gott. Færið er unnið harðfenni og rakur snjór í bland. Brekkur halda nokkuð vel og eru betri eftir því sem ofar kemur. Hitastigið í nótt fór í ca 3 stiga lofthita en mun kaldara í snjónum og hefur haldist um 1-2 stiga frost í honum í alla nótt. Það er búið að troða síðan kl 10 í gærkveldi og er enn verið að nú kl 08:00 í morgun. Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur léttur og góður fyrir alla. Inn á svæðið í gær komu 600 gestir á skíði. Takk góðir gestir að koma til okkar í Skarðsdalinn á Siglufirði.  Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Panta þarf tíma í afgreiðslu í skíðaskála hjá umsjónarmanni skíðasvæðis.  Velkomin í Skarðsdalinn   Starfsmenn

Laugardaginn 23. febrúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 13:40 SW gola, hiti 4 stig, heiðskírt og glaða sól. Færið er troðinn blautur snjór en færið heldur mjög vel í efrihlutanum. Núna kl 13:30 eru um 600 manns búnir að koma í fjallið. Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur. Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning það er laust eftir kl 14:30 í dag. Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Föstudaginn 22. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 11:00 SW 2-7m/sek, hiti 7 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og rakur í bland, brekkur halda nokkuð vel, betra í efri-hlutanum.  Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.  Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning eftir samkomulagi.  Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Fimmtudaginn 21. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 09:00 vestan gola, hiti 5 stig, léttskýjað og sólin komin. Færið er troðinn blautur snjór en brekkur halda vel. Flott veður og flott færi.  Skíðasvæðið verður opið alla daga í þessari viku frá kl 13-19 virka daga og 10-16 um helginna.   Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.  Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning eftir samkomulagi. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Miðvikudaginn 20. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 14:40 W-gola, hiti 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn rakur snjór.  Skíðasvæðið verður opið alla daga í þessari viku frá kl 13-19 virka daga og 10-16 um helginna. Flott veður og flott færi.  Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.  Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning eftir samkomulagi.  Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn  

Þriðjudaginn 19. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 12:15 W gola, hiti 6 stig, léttskýjað og sólin að sýna sig. Færið er troðinn þurr og rakur snjór.  Skíðasvæðið verður opið alla daga í þessari viku frá kl 13-19 virka daga og 10-16 um helginna. Flott veður og flott færi. Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.  Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning eftir samkomulagi. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Mánudaginn 19. febrúar opið kl 13-19

Í dag mánudaginn verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 14:15. logn, hiti 3-4 stig, léttskýjað og sólin að koma upp. Færið er troðinn þurr snjór. Ath. Skíðakennsla fyrir byrjendur og lengra komna verður á skíðasvæðinu í vetur á föstudögum-laugardögum og sunnudögum 1/2 tími kostar 1.500.- Tímasetning eftir samkomulagi.   Skíðasvæðið verður opið alla daga í þessari viku frá kl 13-19 virka daga og 10-16 um helginna. Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur. Velkomin á skíði  Starfsmenn

Sunnudaginn 17. febrúar opið kl 10-16

Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 13:40 SA 3-6m/sek, frost 2 stig og alskýjað. Færið er harðpakkaður nýr snjór. Frábært veður og enn betra færi. Skiptihelgi vetrarkortshafa í gangi. Veðurspá næstu 10 daga er bara frábær SA gola og bjart. Svæðið verður opið alla daga nú í vikunni frá kl 13-19 (18/2-22/2)   Ath. það borgar sig að taka daginn snemma, veður gæti versna þegar líður á daginn. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði ca 3 km hringur Velkomin á skíði  Starfsmenn