Mánudaginn 11. febrúar opið kl 15-19

Í dag mánudaginn 11. febrúar verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 11:30 logn, hiti 2 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni. 


Þá er komið að þriðju skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar)  Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.



Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn