Fréttir

Föstudaginn langa 6. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 V-gola, hiti 1 stig og smá þokusúld en það er 1 . stig frost í efri-hlutanum. Færið er troðinn blautur snjór, allar brekkur troðnar í gærkveldi og nótt, það er betra færi en var í gær en skyggnið er þannig að þokan er að koma og fara og er skyggnið nokkuð gott inn á milli. Búngusvæðið er í skoðun þar er blindþoka. Göngubraut verður tilbúinn kl 13:00 upp á Súlum. Velkomin í fjallið. Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Fimmudaginn 5 apríl skírdag opið kl 10-16

Góðan daginn gott skíðafólk skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ASA 2-5m/sek, hiti 2 stig, rigning og þoka með köflum. Skyggnið á svæðinu nú er þannig að það sést frá skíðaskála og að enda á T-lyftu en það er ekkert skyggni ofan við T-lyftusvæði. Færið er troðinn blautur snjór en færið á T-lyftusvæði er harðara en það er mýkra á Neðstasvæðinu. Byrjum á að opna Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið. Búngusvæði er í skoðun þar er ekkert skyggni. Göngubraut verður lögð  um leið og birtir til. Velkomin í fjallið Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Starfsmenn

Miðvikudaginn 4. apríl lokað vegna hvassviðris

Kl 14.00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 14.00 SV 10-18m/sek og hviður 25-30m/sek. Opnum á morgun skírdag kl 10-16. Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00 Starfsmenn Veður horfur næstu daga eru mun betra. Skíðasvæðið kl 10:00 erum við með opnun í skoðun kl 14:00, veðrið kl 10:00 SV 6-15m/sek og hviður í 25m/sek. Nýjar upplýsingar um kl 14:00 Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Fróðleiksmoli dagsins: http://sagnagrunnur.razorch.com/index.php?target=myth&id=1448

Þriðjudaginn 3. apríl lokað í dag vegna hvassviðris

Kl 14:00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 13-19. Nýjar upplýsingar kl 10:00 Starfsmenn Góðan daginn gott skíðafólk, opnun í dag er í skoðun, veðrið kl 09:00 á neðrihluta svæðisins er SV 6-12 m/sek og hviður upp í 20 m/sek, 2 stiga frost og heiðskírt. Á Búngusvæði kl 09:00 er vindur SV 12-15m/sek og hviður 20-25 m/sek og frost 4 stig. Nýjar upplýsingar kl 14:00 Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Fróðleiksmoli dagsins: Siglufjarðarskarð Hnit: 66°7′18.9″N18°59′56.4″WSiglufjarðarskarð er íslenskur fjallvegur sem liggur á milli Siglufjarðar og Fljóta í Skagafirði. Það var áður aðalleiðin frá Skagafirði til Siglufjarðar, allt þar til Strákagöng voru opnuð 1967. Allt í kringum Siglufjörð eru há og brött fjöll og leiðin um Siglufjarðarskarð, sem er í 630 metra hæð yfir sjávarmáli, var greiðfærasta leiðin úr firðinum og þó ærið erfið, bæði vegna þess hve brött hún var Siglufjarðarmegin og ekki síður vegna snjóa og illviðra á vetrum. Eftir að þéttbýli myndaðist á Siglufirði fóru nær allir flutningar fram sjóleiðina. Upphaflega var fjallseggin í skarðinu svo mjó að þar mátti sitja klofvega með annan fótinn í Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyjafjarðarsýslu. Í þessa egg hafði þó til forna verið höggvið skarð, nægilega breitt til að unnt væri að koma klyfjahesti þar í gegn. Skarðið var svo sprengt niður um fjórtán metra árið 1940 og í framhaldi af því var lagður akfær vegur um skarðið árið 1946. Hann var yfirleitt aðeins fær fjóra til fimm mánuði á ári vegna snjóþyngsla en þó var mikil samgöngubót að honum. Sagnir voru um óvætti í skarðinu fyrr á tíð og árið 1735 flutti Þorleifur Skaftason í Múla, sem talinn var kunna ýmislegt fyrir sér, þar messu að boði Steins Jónssonar biskups og er sagt að honum hafi tekist að beina vondum öflum úr skarðinu og í Afglapaskarð, þar skammt fyrir sunnan. Ferðir um Siglufjarðarskarð lágu niðri að mestu eða öllu í mörg ár eftir að Strákagöng voru opnuð en nú er reynt að halda veginum opnum yfir sumartímann, að minnsta kosti fyrir jeppa.    

Mánudaginn 2. apríl opið kl 13-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veður og færi er frábært, veðrið kl 12:00 austan gola, frost 3 stig, heiðskírt og glaða sólskin. Færið er troðinn þurr snjór í öllum brekkum og eru allar brekkur breiðar og góðar. Við hér á svæðinu mælum með þessum degi að mæta í fjallið. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/  

Sunnudaginn 1. apríl opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ANA 3-7m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn nýr snjór á T-lyftusvæði og Neðstasvæðið er mjög gott. Búngusvæðið er í skoðun, erum að brjóta ísingu af, og skyggnið er ekkert eins og er á Bungusvæði Svæðið lítur mjög vel út nægur snjór og breiðar og góðar brekkur. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/ Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 31. mars lokað í dag vegna hvassviðris.

Kl 12:45 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramálið. Veðurspá fyrir næstu tvo dag er mjög góð. Starfsmenn   Ath. erum með opnun í skoðun kl 13:00. Það er of hvasst hjá okkur, veðrið kl 12:00 SV 4-10m/sek og hviður 15-19m/sek, hiti 4 stig og alskýjað. Nýjar upplýsingar kl 13:00 Kl 10:15 erum við búin að opna fyrir æfingakrakka en gætum þurft að loka með stuttum fyrirvara. Ath það er ekki opið fyrir almenning. Starfsmenn Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Föstudaginn 30. mars opið kl 13-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 austan gola, frost 1 stig og smá éljagangur. Færið er unnið harðfenni. Í dag opnum við Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið. Velkomin í fjallið starfsmenn Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 60-90 cm og í efrihluta er frá ca 100-350 cm. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/    

Fimmtudaginn 29. mars lokað vegna hvassviðris

Kl 14:00 Í dag verður skíðasvæðið lokað vegna hvassviðris. Opnum á morgun föstudaginn 30. mars kl 13-19, nýjar upplýsingar um kl 10:00. Veðurspá fyrir morgundaginn er góð. Starfsmenn Skíðasvæðið er lokað eins og er vegna hvassviðris, nýjar upplýsingar kl 14:00 Veðrið kl 10:15 SSV 5-15m/sek og 20-30m/sek í hviðum, hiti 7 stig og alskýjað. Veðurspá dagsins: Suðvestan 10-15 m/s og rigning með köflum, en þurrt seint í dag og dregur heldur úr vindi. Snýst í hæga norðlæga átt og þykknar heldur upp á morgun. Hiti 4 til 8 stig. Spá gerð: 29.03.2012 06:16. Gildir til: 30.03.2012 18:00. Starfsmenn Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 60-90 cm og í efrihluta er frá ca 100-350 cm. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/  

Miðvikudaginn 28. mars lokað vegna hvassviðris

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 10:30 SV 8-20m/sek, hiti 3 stig og alskýjað. Veðurspá fyrir daginn er okkur ekki hagstæð: Suðvestan 10-15 m/s og rigning með köflum. Hiti 5 til 8 stig. Spá gerð: 28.03.2012 06:34. Gildir til: 29.03.2012 18:00. Stefnum á að opna á morgun kl 15:00, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun. Starfsmenn Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 70-100 cm og í efrihluta er frá ca 100-350 cm. Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/