Miðvikudaginn 28. mars lokað vegna hvassviðris

Helena og Björn mynd tekin 24. mars
Helena og Björn mynd tekin 24. mars

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 10:30 SV 8-20m/sek, hiti 3 stig og alskýjað.

Veðurspá fyrir daginn er okkur ekki hagstæð: Suðvestan 10-15 m/s og rigning með köflum. Hiti 5 til 8 stig.
Spá gerð: 28.03.2012 06:34. Gildir til: 29.03.2012 18:00.

Stefnum á að opna á morgun kl 15:00, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.

Starfsmenn

Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 70-100 cm og í efrihluta er frá ca 100-350 cm.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/