Fréttir

Fimmtudaginn 16. febrúar lokað í dag vegna hvassviðris.

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. kl 15:00, veðrið kl 15:00 SV 6-12m/sek og hviður 18-20m/sek, frost 2 stig og léttskýjað. Snjóalög er mjög góð hjá okkur í Skarðsdalnum. Erum að stefna á að opna kl 12-19 á morgun. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun. Við höfum ekki getað gert göngubraut á Hólssvæði vegna hvassviðris og nú hafa snjóalög minnkað töluvert á Hólssvæðinu. Veðurspá í dag og á morgun: Strandir og Norðurland vestra Suðvestan 13-20 m/s með éljagangi. Dregur úr vindi í dag, suðvestan 5-13 síðdegis, en áfram él. Hægari í kvöld. Gengur í norðaustan 13-20 með snjókomu í fyrramálið. Hiti um og undir frostmarki en frost 2 til 6 stig á morgun. Spá gerð: 16.02.2012 06:31. Gildir til: 17.02.2012 18:00. Starfsmenn

Enginn titill

Miðvikudaginn 15. janúar lokað í dag vegna hvassviðris

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:00 SW 8-20m/sek og hviður upp í 25-30m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Veðurspá í dag og á morgun: Suðvestan 10-15 m/s og úrkomulítið, en 13-20 undir kvöld og éljagangur. Dregur úr vindi á morgun, suðvestan 5-10 síðdegis en áfram él. Kólnandi, hiti um og undir frostmarki í kvöld og á morgun. Spá gerð: 15.02.2012 11:57. Gildir til: 17.02.2012 00:00. Starfsmenn  

Þriðjudaginn 14. febrúar lokað í dag vegna hvassviðris.

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:00 það er eitt orð yfir það rok og rigning, hiti 5 stig. Myndband frá Brettahátíð: http://vimeo.com/36681981 Nýjar upplýsingar á morgun kl 11:00 Starfsmenn  

Mánudaginn 13. febrúar lokað í dag vegna hvassviðris

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:00 SW 5-30m/sek, hiti 6 stig og alskýjað. Til upplýsinga er SW áttin mjög erfið hjá okkur kl 07:44 var hviða 43,4m/sek. Nú hefur verið lokað hjá okkur síðan á föstudaginn 10. febrúar vegna hvassviðris (SW) en snjóalög eru mjög góð eða um 100 cm að meðlatali í öllum brekkum og meira eftir því sem ofar kemur. Við munum standa vaktina og opna um leið og vind lægir. Veðurútlit í dag: http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/nordurland_vestra Nýjar upplýsingar á morgun kl 12:00 Starfsmenn

Sunnudaginn 12. janúar lokað í dag

Lokað í dag vegna hvassviðris og rigningar. Veðrið kl 11:30 SW 5-16m/sek, talsverð rigning og hiti 6 stig. Færið er mjög blaut reyndar rennandi blaut og er mjög erfitt að vinna brekkurnar við þessar aðstæður. Opnum á morgun kl 13-19. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Veðurspá dagsins og á morgun: Strandir og Norðurland vestra Suðvestan og vestan 8-15 og rigning en síðan skúrir eða slydduél. Lægir heldur og úrkomuminna í kvöld. Suðvestan 10-18 á morgun. Hiti 1 til 6 stig en kólnar um tíma í kvöld og nótt. Spá gerð: 12.02.2012 06:30. Gildir til: 13.02.2012 18:00. Starfsmenn  

Laugardaginn 11. janúar lokað í dag vegna hvassviðris

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 12:00 SW 2-25m/sek, frost 1 stig og töluverður skafrenningur. Göngubraut verður tilbúin kl 13:00 3,5 km á Hóssvæði, létt og góð braut fyrir alla. Það má búast við því að sporið haldist illa. Opnum á morgun kl 10-16. Nýjar upplýsingar kl 08:30 Fróðleiksmoli dagsins: http://hvanneyri.com/index.htm Starfsmenn

Föstudaginn 10. febrúar lokað í dag vegna hvassviðris.

Skíðasvæðið verður lokað í dag, veðrið kl 15:00 SV 6-20m/sek og töluverður  skafrenningur. Göngubraut á Hólssvæði tilbúin kl 10:00 3,5 km létt og góð braut fyrir alla. Opnum á morgun kl 11-16, nýjar upplýsingar kl 09:00 Starfsmenn

Fimmtudaginn 9. febrúar opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 13:00 WNW gola, 0 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og harðfenni undir, það hefur snjóða ca 5-10 cm á svæðinu. Göngubraut er á Hólssvæði 3,5 km létt góð braut fyrir alla. Velkomin á skíði í dag, starfsmenn Smá fróðleiksmoli: http://www.travelnet.is/ghi/isl/journey/sv_nl/siglufjordur.htm  

Miðvikudaginn 8. febrúar opið kl 16-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-20, veðrið kl 15:00 SSA 2-6m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt. Það á lægja þegar líður á daginn. Færið er unnið harðfenni. Ég vil minna ykkur á skíðamenn góðir á töfluna hér að ofan um hvaða svæði eru opin og er hún uppfært um leið og eitthvað breytist. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 15:00 3,5 km Velkomin á skíði Starfsmenn