04.04.2012
Kl 14.00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 14.00 SV 10-18m/sek og hviður 25-30m/sek. Opnum á morgun
skírdag kl 10-16.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Starfsmenn
Veður horfur næstu daga eru mun betra.
Skíðasvæðið kl 10:00 erum við með opnun í skoðun kl 14:00, veðrið kl 10:00 SV 6-15m/sek og hviður í 25m/sek.
Nýjar upplýsingar um kl 14:00
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Fróðleiksmoli dagsins: http://sagnagrunnur.razorch.com/index.php?target=myth&id=1448
03.04.2012
Kl 14:00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 13-19. Nýjar upplýsingar kl 10:00
Starfsmenn
Góðan daginn gott skíðafólk, opnun í dag er í skoðun, veðrið kl 09:00 á neðrihluta svæðisins er SV 6-12 m/sek
og hviður upp í 20 m/sek, 2 stiga frost og heiðskírt.
Á Búngusvæði kl 09:00 er vindur SV 12-15m/sek og hviður 20-25 m/sek og frost 4 stig.
Nýjar upplýsingar kl 14:00
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Fróðleiksmoli dagsins:
Siglufjarðarskarð
Hnit: 66°7′18.9″N18°59′56.4″WSiglufjarðarskarð er íslenskur fjallvegur
sem liggur á milli Siglufjarðar og Fljóta í Skagafirði. Það var
áður aðalleiðin frá Skagafirði til Siglufjarðar, allt þar til Strákagöng voru opnuð 1967.
Allt í kringum Siglufjörð eru há og brött fjöll og leiðin um Siglufjarðarskarð, sem er í 630 metra hæð yfir sjávarmáli,
var greiðfærasta leiðin úr firðinum og þó ærið erfið, bæði vegna þess hve brött hún var Siglufjarðarmegin og ekki
síður vegna snjóa og illviðra á vetrum. Eftir að þéttbýli myndaðist á Siglufirði fóru nær allir flutningar fram
sjóleiðina.
Upphaflega var fjallseggin í skarðinu svo mjó að þar mátti sitja klofvega með annan fótinn í Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyjafjarðarsýslu. Í þessa egg hafði þó til forna verið höggvið skarð,
nægilega breitt til að unnt væri að koma klyfjahesti þar í gegn. Skarðið var svo sprengt
niður um fjórtán metra árið 1940 og í framhaldi af því var lagður akfær vegur
um skarðið árið 1946. Hann var yfirleitt aðeins fær fjóra til fimm mánuði á
ári vegna snjóþyngsla en þó var mikil samgöngubót að honum.
Sagnir voru um óvætti í skarðinu fyrr á
tíð og árið 1735 flutti Þorleifur Skaftason í Múla, sem talinn var kunna ýmislegt fyrir sér, þar messu að boði
Steins Jónssonar biskups og er sagt að honum hafi tekist að beina vondum öflum
úr skarðinu og í Afglapaskarð, þar skammt fyrir sunnan.
Ferðir um Siglufjarðarskarð lágu niðri að mestu eða öllu í mörg ár eftir að Strákagöng voru opnuð en nú er reynt
að halda veginum opnum yfir sumartímann, að minnsta kosti fyrir jeppa.
02.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veður og færi er frábært, veðrið kl 12:00 austan gola, frost 3
stig, heiðskírt og glaða sólskin. Færið er troðinn þurr snjór í öllum brekkum og eru allar brekkur breiðar og
góðar.
Við hér á svæðinu mælum með þessum degi að mæta í fjallið.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
01.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ANA 3-7m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn
nýr snjór á T-lyftusvæði og Neðstasvæðið er mjög gott. Búngusvæðið er í skoðun, erum að brjóta
ísingu af, og skyggnið er ekkert eins og er á Bungusvæði
Svæðið lítur mjög vel út nægur snjór og breiðar og góðar brekkur.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
31.03.2012
Kl 12:45 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 í
fyrramálið.
Veðurspá fyrir næstu tvo dag er mjög góð.
Starfsmenn
Ath. erum með opnun í skoðun kl 13:00. Það er of hvasst hjá okkur, veðrið kl 12:00 SV 4-10m/sek og hviður 15-19m/sek, hiti 4 stig og
alskýjað.
Nýjar upplýsingar kl 13:00
Kl 10:15 erum við búin að opna fyrir æfingakrakka en gætum þurft að loka með stuttum fyrirvara. Ath það er ekki opið fyrir
almenning.
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
30.03.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 austan gola, frost 1 stig og smá éljagangur. Færið er
unnið harðfenni.
Í dag opnum við Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 60-90 cm og í efrihluta
er frá ca 100-350 cm.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
29.03.2012
Kl 14:00 Í dag verður skíðasvæðið lokað vegna hvassviðris. Opnum á morgun föstudaginn 30. mars kl 13-19, nýjar upplýsingar um
kl 10:00.
Veðurspá fyrir morgundaginn er góð.
Starfsmenn
Skíðasvæðið er lokað eins og er vegna hvassviðris, nýjar upplýsingar kl 14:00
Veðrið kl 10:15 SSV 5-15m/sek og 20-30m/sek í hviðum, hiti 7 stig og alskýjað.
Veðurspá dagsins:
Suðvestan 10-15 m/s og rigning með köflum, en þurrt seint í dag og dregur heldur úr vindi. Snýst í hæga
norðlæga átt og þykknar heldur upp á morgun. Hiti 4 til 8 stig.
Spá gerð: 29.03.2012 06:16. Gildir til: 30.03.2012 18:00.
Starfsmenn
Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 60-90 cm og í efrihluta
er frá ca 100-350 cm.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
28.03.2012
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 10:30 SV 8-20m/sek, hiti 3 stig og alskýjað.
Veðurspá fyrir daginn er okkur ekki hagstæð: Suðvestan 10-15 m/s og rigning með köflum. Hiti 5 til 8 stig.
Spá gerð: 28.03.2012 06:34. Gildir til: 29.03.2012 18:00.
Stefnum á að opna á morgun kl 15:00, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.
Starfsmenn
Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 70-100 cm og í efrihluta er frá ca 100-350
cm.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
27.03.2012
Skíðasvæðið verður lokað í dag. Opnum á morgun miðvikudaginn 28. mars frá kl 15-19.
Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun
Starfsmenn
Snjóalög eru mjög góð í Skarðsdalnum í neðrihluta er ca 70-100 cm og í efrihluta er frá ca 100-350 cm.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
26.03.2012
Kl 16:30 höfum við lokað vegna hvassviðris, SV 7-20m/sek.
Kl 13:00 Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 13:00 SW 2-5m/sek, hiti 7 stig, heiðskírt og sól,
færið er troðinn blautur snjór og er nokkuð mjúkt færi. Það þarf að taka daginn snemma það gæti byrjað að hvessa
seinnipartinn.
Góðan daginn gott skíðafólk, skíðasvæðið er lokað eins og er, nýjar upplýsingar um kl 13:00. Veðirð kl 09:30 V
2-6m/sek, hiti 8 stig og rigning.
Um helgina (föst-sunnud) komu á skíðasvæði um 600 manns og var veðrið mjög gott en kannski of heitt fyrir suma en hiti fór í
20c° á veðurstöð á Búngusvæði (470m hæð) á laugardaginn 24. mars.
Snjóalög eru mjög góð á Skíðasvæðinu í dag (100cm -300cm) og eru töluvert betri en á sama tíma í
fyrra. Þannig að við horfum björtum augum til Páskahátíðar.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
Starfsmenn