27.10.2012
Lokið var við að steypa undirstöður fyrir Hálslyftu 26. október, unnu við það verk margir vaskir menn en að því verki komu
Bergara, Básara, Rauðkumenn og fl, í undirstöður fóru um 42 m3 af steypu. Þetta verk tókst mjög vel en einungis tók 5 daga að grafa
fyrir mótum, koma þeim fyrir og steypa, takk fyrir þetta drengir.
Allur lyftubúnaður er kominn til Sigló og bíður þess að verað setur upp þegar steypa hefur náð styrk, unnið verður við
rafbúnað og að gera lyftubúnað kláran næstu daga, en markmiðið er að reisa lyftuna í kringum 15-20. nóvember og taka lyftuna
í notkun 1.desember.
Það hefur ýmislegt verið gert til að bæta þjónustu við skíðafólk í Skarðsdalnum. Búið er að setja
upp nýtt hús á Búngusvæði með snyrtingum og pallur í kring, búið er að lagfæra og lengja Stálmastursbrekku og
lýsing hefur verið bætt á því svæði, búið er að færa Markhús og byggja pall í kringum það, sem
nýtist sem Mark-og Hálslyftuhús.
Það eru spennandi tímar framundan í Skarðsdalnum en markmiðið er að opna svæðið 1. desember og þar með nýja lyftu
Hálslyftu sem mun gjör breyta svæðinu.
Þegar þetta er skrifað er kominn nægur snjór á Búngusvæði og í efrihluta T-svæðis, þannig að þetta
lítur allt mjög vel út.
Egill Rögg
14.10.2012
Allt á fullu við byggingu á Hálslyftu sem mun tengja T-lyftusvæðið og Búngusvæðið og auðvelda allt aðgengi á
Búngusvæðið.
Búið að koma öllum mótum fyrir og unnið er að því að færa Markhúsið sem mun nýtast sem Markhús og
Hálslyftuhús, lagfæra þarf Stálmasturbrekku og bæta lýsingu á svæðinu.
Sjá frétt inn á siglo.is
http://sksiglo.is/is/news/framkvaemdir_a_skidasvaedinu/
04.09.2012
Nýtt Búngulyftu og WC hús komið á sinn stað, farið var með húsið í dag og verður vatn, frárennsli og rafmagn tengt í
þessari viku.
Allt á fullu er varð Hálslyftu sem mun tengja saman T-lyftusvæðið og Búngusvæðið.
Unnið er að gerð prófíls og teikningum og er meiningin að mæla út fyrir lyftunni og grafa fyrir lyftuspori og undirstöðum eftir
15. september.
Um leið og eitthvað er að gerast setjum við upplýsingar inn á heimasíðu, sigló.is og facebook.
Egill Rögg
04.08.2012
Framkvæmdir munu hefjast eftir verslunarmanna helgi á því að byggt verður nýtt Búngulyftuhús og í því
húsi verða snyrtingar, þannig að öll aðstaða fyrir gesti á Búngusvæðu mun batna. Síðan í framhaldinu mun verða
byggð lyfta (Hálslyfta) en nafni er komið til af því að hún mun enda upp á Siglufjarðarhálsi og verður allt aðgengi að
Búngusvæði auveldara.
Skarðskveðja
Egill Rögg
03.05.2012
Skíðasvæðinu hefur verið lokað þetta vorið, starfsmenn skíðasvæðisins þakkar þeim fjölmörgu sem heimsótu
okkur í vetur, sjáumst hress næsta vetur.
Opnunardagar í vetur voru 94 og gestir voru 12. þúsund.
Gleðilegt sumar
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndba
30.04.2012
Jæja nú er runninn upp síðasti opnunar-dagurinn þetta vorið og er hann mjög fallegur. SV veturinn frægi kveður með veður
blíðu.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 09-14, veðrið kl 08:00 WSW 1-3m/sek, hiti 6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn
rakur og þurr snjór í bland, mjög gott færi fyrir alla.
Opnum Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið
Velkomin í fjallið, starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndba
29.04.2012
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 11-16, veðrið kl 09:30 NV 2-4m/sek, éljagangur og frost 1 stig, Færið er
troðinn nýr snjór og er færið mjúkt.
Í dag opnum við Neðstasvæði og T-lyftusvæðið, annað er í skoðun.
Tilboðsverð per dag fullorðinn kr 1.500.- og barn kr 500.-
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér frábærar aðstæður í Skarðsdalnum þetta vorið.
Opnun er þessi næstu 2 daga.
Sunnudaginn 29.apríl kl 11-16 og allar síðasti dagurinn er mánudaginn 30. apríl opið kl 09-14.
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndba
28.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 08:30 logndrífa, hiti 1 stig og alskýjað. Færið er
troðinn nýr snjór, brekkur breiðar og góðar. Hugsið ykkur að koma í fjallið og hlusta á Lóuna kvaka er hægt að
biðja um meira.
Skíðamenn nær og fjær koma nú í fjallið. (Blakarar og Eyfirðingar).
Sjá hér að ofan hvaða svæði eru opin og kannski opnum við allt.
Velkomin í Skarðsdalinn starfsmenn
Tilboðsverð per dag fullorðinn kr 1.500.- og barn kr 500.-
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér frábærar aðstæður í Skarðsdalnum þetta vorið.
Opnun er þessi til næstu mánaðarmóta.
Laugardaginn 28. apríl opið kl 11-16 og síðasti opnunardagurinn er sunnudaginn 29.apríl kl 11-16 og allar síðasti dagurinn er mánudaginn
30. apríl opið kl 10-14.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndba
27.04.2012
Kl 16:00 Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 16:00 SV 7-18m/sek, hiti 4 stig og alskýjað. Stefnum á að opna á morgun kl 11-16,
nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00.
Starfsmenn
Í dag föstudaginn 27. apríl er opnun í skoðun kl 16:00, veðrið kl 15:00 SV 5-15m/sek, hiti 4 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi fyrir alla.
Frábærar aðstæður eru í dalnum góða. Tilboðsverð per dag fullorðinn kr 1.500.- og börn kr 500.-
Lengsta rennslisleið er 2,5 km og mesta breidd er 60 metrar, fallhæð frá Búngutopp og að skíðaskála er 460 metrar.
Nú mæta allir landsmenn í Skarðsdalinn um helginna (páskaauki)(Eyfirðingar og blakarar koma svo), meiriháttar brekkur, breiðar og
góðar og nægur er snjórinn. Snjódýpt á svæðinu er frá 1 meter og upp í 4 metra.
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér frábærar aðstæður í Skarðsdalnum þetta vorið.
Opnun er þessi til næstu mánaðarmóta.
Föstudaginn 27. apríl opið kl 14-19, laugardaginn 28. apríl opið kl 11-16 og síðasti opnunardagurinn er sunnudaginn 29.apríl kl
11-16.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband
Velkomin í fjallið starfsmenn
26.04.2012
Frábærar aðstæður eru í dalnum góða. Tilboðsverð per dag fullorðinn kr 1.500.- og börn kr 500.-
Lengsta rennslisleið er 2,5 km og mesta breidd er 60 metrar, fallhæð frá Búngutopp og að skíðaskála er 460 metrar.
Skíðasvæðið opnar á morgun föstudaginn 27. apríl kl 14-19. Veðurspá fyrir morgun-daginn er mjög góð.
Nú mæta allir landsmenn í Skarðsdalinn um helginna (páskaauki)(Eyfirðingar og blakarar koma svo), meiriháttar brekkur, breiðar og
góðar og nægur er snjórinn. Snjódýpt á svæðinu er frá 1 meter og upp í 4 metra.
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér frábærar aðstæður í Skarðsdalnum þetta vorið.
Opnun er þessi til næstu mánaðarmóta.
Föstudaginn 27. apríl opið kl 14-19, laugardaginn 28. apríl opið kl 11-16 og síðasti opnunardagurinn er sunnudaginn 29.apríl kl
11-16.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband
Sjáumst hress á Sigló
Starfsmenn