Frábærar aðstæður eru í dalnum góða. Tilboðsverð per dag fullorðinn kr 1.500.- og börn kr 500.-
Lengsta rennslisleið er 2,5 km og mesta breidd er 60 metrar, fallhæð frá Búngutopp og að skíðaskála er 460 metrar.
Skíðasvæðið opnar á morgun föstudaginn 27. apríl kl 14-19. Veðurspá fyrir morgun-daginn er mjög góð.
Nú mæta allir landsmenn í Skarðsdalinn um helginna (páskaauki)(Eyfirðingar og blakarar koma svo), meiriháttar brekkur, breiðar og góðar og nægur er snjórinn. Snjódýpt á svæðinu er frá 1 meter og upp í 4 metra.
Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér frábærar aðstæður í Skarðsdalnum þetta vorið. Opnun er þessi til næstu mánaðarmóta.
Föstudaginn 27. apríl opið kl 14-19, laugardaginn 28. apríl opið kl 11-16 og síðasti opnunardagurinn er sunnudaginn 29.apríl kl 11-16.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband
Sjáumst hress á Sigló
Starfsmenn