Fréttir

Laugardaginn 17. janúar opið kl 12-16

Opið verður í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 11:45 A 3-6m/sek, frost 4 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn púðursnjór.  Það hefur bætt á ca 25-35cm af snjó.  Það tekur töluverðan tíma að vinna brekkurnar og moka veginn að skíðasvæðinu þannig að við seinkum opnun til kl 12:00 Minni á morgun sunnudaginn 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði skíðasvæðisins og Skíðasambandsins Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate# Vekomin í fjallið

Föstudaginn 16. janúar opið kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 13:30 austan gola, 3 stiga frost og alskýjað. Færið er troðinn púður snjór. Flott færi fyrir alla. Velkomin í fjallið í dag Starsfmenn Minni á næsta sunnudag 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði skíðasvæðisins og Skíðasambandsins Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu  http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate#

Fimmtudaginn 15. janúar lokað

KL 14:30 Það verður lokað vegna veðurs í dag. Nýjar upplýsingar á morgun kl 11:00. Nýjar upplýsingar um kl 14:00. Veðrið kl 09:30 NA 10-25m/sek og töluverður skafrenningur. Starfsmenn

Miðvikudaginn 14. janúar opið kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl18:00 NA 2-5m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Á að lægja þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór. Það er dálítið af nýjum snjó á svæðnu. Velkomin í fjallið Starfsmenn

þriðjudaginnn 13. janúar lokað

Það vantar skíðakennara á Skíðavæðið bæði fyrir bretti og skíði. Lokað í dag en opnum á morgun kl 16:00 Minni á næsta sunnudag 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði skíðasvæðisins. Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu  http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate# Starfsmenn

Mánudaginn 12. janúar lokað vegna hvassviðris

Kl 13:30 Það verður lokað í dag það er farið að hvessa töluvert NA 13-20m/sek.  Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 11:00 NA 4-12m/sek, frost 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Velkomin í fjallið

Sunnudaginn 11. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16 í því bezta færi sem hefur verið á þessum vetri, WSW gola, frost 5-7 stig og heiðskírt. Troðinn þurr snjór. Þetta verður flottur dagur. Alparnir á Siglufirði hafa aldrei verið betri en einmitt nú, brekkurnar eins og silki. Brekkur upp á tvo kílómetra að lengd.  Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Laugardaginn 10. janúar opið kl 11-16

Hálslyftan komin í gang og svo kemur Búngulyftan þegar við höfum fundið nægan snjó til að moka í lyftusporið tekur næstu 2-3 daga. Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 10:00 vestan 4-8m/sek, frost 5-6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og færi. Opnum 2 lyftur til að byrja með og setjum Hálslyftu í gang um leið og hún er tilbúinn sem gæti verið á milli 11 og 12. Búið að gera við lyftunna og erum við að hengja höldin á hana. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 9. janúar opið kl 14-19

Það verður flottur dagur á morgun, opnum kl 11-16. Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er S 2-8m/sek, frost 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi fyrir alla það er nýr snjór á svæðinu. Eins og staðan er núna opnum við tvær lyftur í dag. Unnið er að viðgerð á Hálslyftu og er verið að færa til mikinn snjó til að koma Búngulyftu inn, en það var enginn snjór í lyftusporinu, það er blessað hvassviðrið sem hefur verið að gera okkur þetta erfitt. Vonandi getum við sett Hálslyftuna í ganga um helginna. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 8. janúar lokað vegna hvassviðris

Lokað í dag vegna hvassviðris Veðrið kl 10:00 SSW 4-25m/sek, frost 1 stig og töluverður skafrenningur. Takið frá næstu 3 daga, veðurútlit er mjög gott SA átt og frost eins og það gerist bezt   Nýjar upplýsingar kl 14:00 Starfsmenn