Laugardaginn 17. janúar opið kl 12-16

Opið verður í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 11:45 A 3-6m/sek, frost 4 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn púðursnjór. 

Það hefur bætt á ca 25-35cm af snjó. 

Það tekur töluverðan tíma að vinna brekkurnar og moka veginn að skíðasvæðinu þannig að við seinkum opnun til kl 12:00


Minni á morgun sunnudaginn 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði skíðasvæðisins og Skíðasambandsins Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate#


Vekomin í fjallið