Fréttir

Miðvikudaginn 7. janúar opið frá kl 16-19

Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 12:00 sunnan 2-8m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni, hitastig í snjónum er -1. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 6. janúar er lokað

Í dag verður lokað en opnum aftur á morgun. Erum að vinna að því að koma inn Hálslyftusvæði og Búngulyftusvæði, það þarf að færa til mikið af snjó. Starfsmenn

Mánudaginn 5. janúar opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er ASA 2-5m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Sunnudaginn 4. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 10:15 austan 4-8m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.  Nú er um að gera að taka daginn snemma.  Ath skíðið í troðnum brautum það er mjög stutt víða niður á grjót í ótroðnu. Það er alltaf gaman að velta fyrir sér tölum. Nú fyrstu 2 dagana sem opið hefur verið í Skarðsdalunum eru gestir um 300 manns og íbúar í Fjallabyggð um 2200 manns. Í Bláfjöllin hafa komið um 7 þúsund manns flest á einum degi sem er auðvitað glæsilegt en á stór-Reykjarvíkursvæðinu búa um 220 þúsund manns. 150 manns í Skarðsdalnum og 7-8 þúsund í Bláfjöllum á daga. Tölur eru alltaf skemmtilegar. Sjáumst hress  Starfsmenn

Laugardaginn 3. janúar opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 08:40 SSW 3-10m/sek, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Erum að vinna við að koma inn efri svæðunum báðum. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 2. janúar opið kl 14-19 Gleðilegt ár

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Frábært veður og frábært færi. Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 16:20 er austan gola, frost 7 stig og heiðskírt. Færið er troðinn púðursnjór það hefur snjóað ca 25-30 cm í brekkurnar. Á árinu 2014 var opið í 84 daga og gestir 10500 en á árinu 2013 var opið í 103 daga og gestir 17000. Veðurfara var einstaklega erfitt á árinu 2014 sem skýrir þennan mun að töluverðu leyti. Veturinn 2015 verður bara betri. Velkomin í fjallið Starfsmenn