Föstudaginn 2. janúar opið kl 14-19 Gleðilegt ár

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.


Frábært veður og frábært færi.


Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 16:20 er austan gola, frost 7 stig og heiðskírt. Færið er troðinn púðursnjór það hefur snjóað ca 25-30 cm í brekkurnar.


Á árinu 2014 var opið í 84 daga og gestir 10500 en á árinu 2013 var opið í 103 daga og gestir 17000. Veðurfara var einstaklega erfitt á árinu 2014 sem skýrir þennan mun að töluverðu leyti. Veturinn 2015 verður bara betri.


Velkomin í fjallið

Starfsmenn