Fréttir

Sunnudaginn 15. febrúar opið kl 12-16

Opið í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 13:00 ASA 2-8m/sek, hiti 3 stig og nú er farið að slydda hjá okkur. Færið er troðinn rakur snjór og heldur mjög vel. Erum með það í skoðun að opna Hálslyftu.  Stefnum á að opna kl 12 Nýjar upplýsingar kl 11:00 Veðrið kl 10:15 S 3-18m/sek og hiti 5 stig.   Starfsmenn

Laugardaginn 14. febrúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 13:45 ASA 1-6m/sek, hiti 8 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Flott færi og veður í Skarðsdalnum í dag. Velkomin í fjallið

Föstudaginn 13. febrúar opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:15 er austan 4-12m/sek, frost 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi er í fjallinu í dag. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 12. febrúar opið kl 14-19

!!Nýr snjór yfir öllu!! Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið Kl 11:40 er SSV 2-13m/sek, frost 8 stig, smá skafrenningur. Færið er troðinn púðursnjór, það snjóaði ca 25 cm í nótt. Flott færi í dag.   Veðurútlit næstu dag er mjög gott SA áttir sem er það bezta hér í Skarðsdalnum. Minni ykkur á að hafa með ykkur vasakortin, hægt er að fylla á öll kort, einnig eru þau til sölu á staðnum á kr 1.000.- en bendi á gjaldskrá hér á heimasíðuni. Með göngubraut á Hólssvæði er í athugun en það fór allur snjór á lálendi. Ps það er verið að taka upp myndina Ófærð hér á svæðinu og bið ég okkur öll að taka tillit til þess, þau verða að til kl 18:00 í dag. Geta orðið tafir á að komast að Skíðaskála. Umsjónarmaður

Miðvikudaginn 11. febrúar opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er VSV 1-4m/sek, frost 8 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 10. febrúar lokað/closed

Ath. það verður opið alla virka daga í febrúar frá kl 13-19 og um helgar frá kl 10-16 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Það kemur nýr dagur á morgun með betra veður, veðurkortin sýna það. Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.

Mánudaginn 9. febrúar opnun í skoðun

Kl 15:15 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris SW 4-10 m/sek en hviður eru 20-25m/sek. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00. Erum með opnun í skoðun kl 16:00. Það er möguleiki að það lægi seinnipartinn þá mögulega opið frá kl 16-20. Nýjar upplýsingar um kl 15:00 Starfsmenn

Sunnudaginn 8. febrúar lokað/closed

Ja veðrið getur verið erfitt en mesta hviða sem hefur mælst nú í vetur var á föstudaginn 6. febrúar SW 50.4m/sek kl 16:50 svo stuttu síðar voru einungis 3m/sek. Það getur hvesst í Skarðsdalnum en svo er svakalega gott á milli eins og verður í næstu viku. Sjáumst hress. Í dag verður lokað vegan hvssviðris. Á svæðinu kl 08:45 er SW 2-10m/sek og hviður eru 20-25m/sek og verður svo í dag miðað við öll veður kort, því miður, það er einnig mikill hiti á svæðinu 6-8 stig. Þetta fer að lagast í næstu viku. Starfsmenn

Laugardaginn 7. febrúar lokað/closed

Kl 11:30 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, SW 2-10m/sek en hviður eru 15-25m/sek. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00 Lokað eins og er. Nýjar upplýsingar kl 12:00. Veðrið kl 09:00 SW 5-12m/sek en 20-25m/sek í hviðum. Keyrum ekki lyftur í þessu hvassviðri.

Föstudaginn 6. febrúar lokað/closed

Það verður lokað í dag vegna hvassviðris Veðri kl 13:00 SW 5-15m/sek og hviður 20-30m/sek. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00  Erum með opnun í skoðun. Nýjar upplýsingar kl 13:00. Veðrið kl 09:00 SW 2-16m/sek, hiti 5 stig.  Fjallamenn