Fréttir

Fimmtudaginn 11. desember

Það er að bæta á snjóinn hjá okkur ca 20-30cm á síðasta sólahring og er verið að troða allt sem hægt er að troða. Stefnum á að opna á laugardaginn 13. des kl 11:00. Tilboð á Vetrakortum kr 21.000.- fyrir fullorðna og 8.000.- fyrir börn. Þetta tilboð gildir til 24. desember. Auðvelt að panta senda tp á skard@simnet.is  Umsjónarmaður

Miðvikudaginn 10. desember

Nú er norðan 5-20m/sek og töluverður skafrenningur og allt á fullu við að troða allan snjó sem mögulegt er. Það er vetrarríki í veðurkortunum.  Stefnum á að opna laugardaginn 13. des. Tilboð á vetrakortum til 24. des Fullorðnir kr 21.000.- Börn kr 8.000.- auðvelt að panta senda tp á skard@simnet.is ath. greiða þarf fyrir kortin síðasta lagi 24.des. Fjallamenn

Þriðjudaginn 9. desember enn bætir á snjóinn

Það hefur bætt á snjóinn ca 10-30 cm og er verið að troða allt sem hægt er og nú í veðurkortunum er bara snjór og allir mjög glaðir með það. Stefnum á opna um næstu helgi. Fylgist með okkur hér, skardsdalur facebook og 878-3399 Tilboð á vetrarkortum til 24. des Fullorðnir kr 21.000.- og börn kr 8.000.- sama verð og var á síðast tímabili engin hækkun. Einfallt að senda tp á skard@simnet.is eða koma í Skarðsdalinn heitt á konnunni. Umsjónarmaður

Mánudaginn 8. desember

Það hefur snjóað ca 20-40 cm hjá okkur það er að koma meiri snjór í vikunni, þannig að það stefnir í opnun um næstu helgi 13.des. Fylgist með okkur hér og á facebook skarðsdalur. Upplýsingasími 878-3399.  Báðir troðara á fullu við að binda snjó!! Minni á tilboð á vetrarkortum kr 21.000.- fyrir fullorðin og kr 8.000.- fyrir börn. Einnig er tilboð fyrir skólakrakka kr 8.000.- framhalds/háskólanema. Senda tp á skard@simnet.is, leggja inn á 1102-26-1254 kt 640908-0680 nú eða koma í heimsókn í skarðsdalinn (posi) heitt á könnunni og jólakökkur. Greiða þarf fyrir vetrarkort eigi síðar en 24. desember. Umsjónarmaður

Föstudaginn 5. desember

Tilboð á vetrarkortum framlengt til 24. des Þá er bara að koma í heimsókn í Skarðsdalinn eða senda tp á skard@simnet.is.  Fullorðnir kr 21.000.- börn kr 8.000.- Tilboð gildir til 24. des. Einfalt að panta kort, senda á skard@simnet.is. Greiðslur posi eða 1102-26-1254 kt 640908-0680 Ath. greiða þarf fyrir 24. desember. Fylli á kortin ykkar þegar þið komið í fjallið ef ekki er verð á korti kr. 1.000.- Þetta er allt að koma það hefur snjóað ca 30-40 cm og mun halda áfram næstu daga. Umsjónarmaður  

Fimmtudaginn 4.desember allt að koma

Nú snjóar töluvert hjá okkur. Og nú er bara snjókoma í öllum kortum sem eru í boði eða til 13. des. Tilboð á vetrarkortum framlengt til 24. des Þá er bara að koma í heimsókn í Skarðsdalinn eða senda tp á skard@simnet.is. Heitt á könnunni og jólasmákökur. Fullorðnir kr 21.000.- börn kr 8.000.- Tilboð gildir til 24. des. Einfalt að panta kort, senda á skard@simnet.is. Greiðslur posi eða 1102-26-1254 kt 640908-0680 Ath. greiða þarf fyrir 24. desember. Fylli á kortin ykkar þegar þið komið í fjallið ef ekki er verð á korti kr. 1.000.- Á laugardag: Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, en úrkomulítið á N- og A-landi. Norðlægari seint um kvöldið og fer að snjóa N-til. Hiti um og undir frostmarki.  Á sunnudag: Norðan 5-13 m/s og él, en bjartviðri á S- og V-landi. Frost 2 til 8 stig.  Á mánudag: Vaxandi suðaustan- og austanátt síðdegis með snjókomu S-til og síðar slyddu eða rigningu, en þurrviðri annars staðar. Frost 0 til 12 stig, mest í innsveitum fyrir norðan, en hlýnar um kvöldið.. Á þriðjudag: Breytileg átt og rigning eða slydda A-til, en él um landið V-vert.  Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu fyrir norðan um kvöldið. Vægt frost, en sums staðar frostlaust við S- og A-ströndina.  Á miðvikudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu, en úrkomulítið syðra. Hiti um og undir frostmarki. Spá gerð: 04.12.2014 08:58. Gildir til: 11.12.2014 12:00.

Miðvikudaginn 3. desember

Tilboð á vetrarkortum framlengt til 24. des Þá er bara að koma í heimsókn í Skarðsdalinn eða senda tp á skard@simnet.is. Heitt á könnunni og jólasmákökur. Fullorðnir kr 21.000.- börn kr 8.000.- Tilboð gildir til 24. des. Einfalt að panta kort, senda á skard@simnet.is. Greiðslur posi eða 1102-26-1254 kt 640908-0680 Ath. greiða þarf fyrir 24. desember. Fylli á kortin ykkar þegar þið komið í fjallið ef ekki er verð á korti kr. 1.000.- Allt á réttri leið.  Norge spáir snjókomu frá sunnudegi og alla næstu viku og sjáið þið hér spá frá veðurstofunni, hún er eins. Á sunnudag: Útlit fyrir norðvestan- eða vestanátt. Snjókoma fyrir norðan, úrkomulítið SA-til, en annars él. Frost um mest allt land og fremur kalt inn til landsins. Á mánudag og þriðjudag: Búast má við norðaustan- og síðar norðanhvassviðri með snjókomu, einkum N- og A-til. Sums staðar frostlaust við ströndina, en annars vægt frost. Spá gerð: 03.12.2014 08:27. Gildir til: 10.12.2014 12:00.

Mánudaginn 1. desember

Vegna þess að veturinn er að koma í næstu viku er tilboð á Vetrarkortum framlengt til 24. desember. Þá er bara að koma í heimsókn í Skarðsdalinn eða senda tp á skard@simnet.is. Heitt á könnuni og jólasmákökur. Fullorðnir kr 21.000.- börn kr 8.000.- Tilboð gildir til 24. des. Einfalt að panta kort, senda á skard@simnet.is. Það eru él í kortunum seinni-partinn í þessari viku og vel fram í næstu viku. Opnum um leið og hægt verður. Fjallamenn