Miðvikudaginn 3. desember

Tilboð á vetrarkortum framlengt til 24. des

Þá er bara að koma í heimsókn í Skarðsdalinn eða senda tp á skard@simnet.is. Heitt á könnunni og jólasmákökur. Fullorðnir kr 21.000.- börn kr 8.000.- Tilboð gildir til 24. des. Einfalt að panta kort, senda á skard@simnet.is. Greiðslur posi eða 1102-26-1254 kt 640908-0680


Ath. greiða þarf fyrir 24. desember. Fylli á kortin ykkar þegar þið komið í fjallið ef ekki er verð á korti kr. 1.000.-




Allt á réttri leið.  Norge spáir snjókomu frá sunnudegi og alla næstu viku og sjáið þið hér spá frá veðurstofunni, hún er eins.



Á sunnudag: Útlit fyrir norðvestan- eða vestanátt. Snjókoma fyrir norðan, úrkomulítið SA-til, en annars él. Frost um mest allt land og fremur kalt inn til landsins. Á mánudag og þriðjudag: Búast má við norðaustan- og síðar norðanhvassviðri með snjókomu, einkum N- og A-til. Sums staðar frostlaust við ströndina, en annars vægt frost. Spá gerð: 03.12.2014 08:27. Gildir til: 10.12.2014 12:00.