Fréttir

Allt að verða tilbúið, bíðum eftir snjó.

Nú er allt að verða tilbúið og nú bíðum við eftir að snjói duglega hjá okkur, við opnum um leið og hægt er, nú er um að gera að fara að hugsa um að pússa skíðabúnaðinn og vera klár þegar kallið kemur. Sjáumst hress í vetur. Starfsmenn.

Ekki opið um helginna

Því miður getum við ekki haft opið um komandi helgi vegna snjóleysis, við stefnum á að opna um næstu helgi eða um leið og færi gefst og það verður auglýst um leið með góðum fyrirvara, erum að vinna við viðhald á T-lyftu og setja saman troðara og gera allt klárt. Sjáumst hress í fjallinu. Starfsmenn  

Framkvæmdir á skíðasvæðinu.

Unnið var að framkvæmdum í síðustu viku á öllum svæðum, nú er búið að koma miklum turni fyrir upp á Búngutopp þar sem troðarinn getur fest sig í og treður alla Búnguna á mjög auðvelda hátt upp og niður, jarðvegsvinna við báða enda á T-lyftu og söfnunarsvæði við Neðstu-lyftu sléttað betur, og nú bíðum við eftir að það snjói vel og duglega svo við getum opnað 1. nóvember. Sjáumst hress í fjallinu. Starfsmenn

Undirbúningur skíðasvæðisins

Unnið er við að gera svæðið klárt, bæði viðhald og unnið er við framkvæmdir, bæta brekkur og bæta vinnu aðstöðu fyrir snjótroðara á Búngusvæði. Við stefnum á opna allt svæðið 1. nóvember og ath. við erum með opið á mánudögum en lokað verður á þriðjudögum. Sjáumst hress í fjallinu. Starfsmenn

Öflugur rekstur skíðasvæðisins tryggður til þriggja ára

Frétt tekin af siglo.is Egill Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Valló, og Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, skrifuðu síðastliðinn föstudaginn undir samning þess efnis að Valló haldi áfram rekstri skíðasvæðisins og hafi umsjón með knattspyrnuvöllum Fjallabyggðar á Siglufirði næstu þrjú árin. Egill var að vonum mjög ánægður með þennan áfanga enda hefur hann lagt bæði líf og sál í verkefnið á liðnu ári. Nú getur hann hafist handa við að skipuleggja framtíðina með langtíma samningum við samstarfsaðila. Aðspurður hvort einhverra breytinga sé að vænta segir Egill helstu breytinguna þá að í vetur verði lokað á þriðjudögum í stað þess að loka á mánudögum eins og venjan var síðastliðinn vetur. Er þetta gert í þeim tilgangi að lengja helgarnar fyrir þá sem koma langt að til að sækja svæðið. Síðastliðinn vetur tókst Agli að sexfalda heimsóknir á skíðasvæðið frá fyrri árum og á hann því augljóslega skilið að takast á við verkið á komandi árum. Þetta tókst honum með óbilandi dugnaði og öflugri markaðssetningu. Sigló.is fagnar því þessum tíðindum og telur samninginn vera afar mikilvægt skref í að auka ferðamannastreymi til Siglufjarðar enn frekar. Valló og Fjallabyggð til hamingju með samninginn.

Framtíðasamningur í höfn

Þriggja ára samningur við Valló var samþykktur í bæjarstjórn Fjallabyggðar í gær, samningurinn tekur yfir skíðasvæðið í Skarðsdal og knattspyrnusvæðið við Hól og  nú er hægt að byggja upp reksturinn til framtíðar og markaðsetja skíðasvæðið sérstaklega og fjölga gestum. Sjáumst hress og kát í Skarðsdalnum. Kv Egill Rögnvaldsson  

Framtíðarsamningur.

Unnið er að framtíðarsamningi um íþróttasvæðin, skíðasvæðið Skarðsdal og knattspyrnusvæði við Hól til allt að 3. ára, kemur vonandi í ljós á næstu vikum, ég mun setja inn frétt um leið og þetta verður komið á hreint. Egill Rögnvaldsson

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn

Gleðilegt sumar og hafið það gott, takk fyrir veturinn og vonandi sjáumst við aftur, við stefnum á að opna aftur í haust október-nóvember. Sumarkveðjur frá starfsmönnum.  

Lokað í dag sunnudaginn 10. maí

Við verðum að hafa lokað í dag, það er SV 10-12m/sek og meira í hviðum og rigning. Þetta var loka helginn, og höfum við því lokað skíðasvæðinu núna þetta vorið, ég vil koma miklu þakklæti til allra nær og fjær sem heimsótu skíðasvæðið í vetur, vonandi sjáumst við hress og kát næsta vetur og ef ég verð með skíðasvæðið næsta vetur þá stefnum við á að opna 1. nóvember takk takk. Starfsmenn skíðasvæðisins: Egill, Óðinn, Birkir, Rögnvaldur, Hulda, Kári og Helgi óska ykkur öllum gleðilegs sumars.  

Lokað í dag laugardaginn 9. maí

Við verum að hafa lokað í dag, það er leiðinda veður og mjög blint, við stefnum á að opna á morgun sunnudaginn 10. maí kl 12-16. Frítt verður í lyftur og skíðasvæðið bíður upp á grillaðar pylsur. Starfsmenn