Fréttir

Opið í dag laugardaginn 14. mars

Opið verður í dag frá kl 11-16, veðrið er A og SA 6-8m/sek en 12-14m/sek í hviðum, -1c° og skýjað, það á að lagast veðrið þegar líður nær hádegi, færið er mjög gott troðinn þurr snjór. Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 11:00 en Búngu-lyftu vonandi um kl 12:00. Göngubraut er við Hól og verður hún tilbúinn um kl 14:00 Velkomin á skíði starfsmenn.

Opið í dag föstudaginn 13. mars

Opið verður í dag frá kl 14-19, veðrið í fjallinu er mjög gott SA gola, -3c° og léttskýjað (smá sól). Færið er mjög gott fyrir alla það hefur snjóða töluvert hjá okkur. Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 14:00 og Búngu-lyftu um kl 16:00 eða þegar búið verður að vinna búngusvæðið, göngubraut er við Hól. Starfsmenn skíðasvæðisins vilja koma því á framfæri til skíðamanna að skíða ekki í hlíðinni fyrir ofan neðstasvæðið og virða það. Velkomin á skíði starfsmenn.

Lokað í dag fimmtudaginn 12. mars

Lokað verður í dag vegna veðurs, en við opnum á morgun kl 14-19, nánari upplýsinga um kl 12:00 á morgun föstudaginn 13. mars. Starfsmenn  

Opið í dag miðvikudaginn 11. mars

Opið verður frá kl 16-20, veðrið í fjallinu er NA-3-6m/sek 0c° og léttskýjað, færið er mjög gott troðinn púðursnjór frábært færi fyrir alla. Við verðum með í gangi Neðstu-lyftu og T-lyftu, göngubraut er við Hól. Starfsmenn vilja koma því á framfæri að skíðamenn skíði í troðnum brautum og skíði alls ekki í hlíðinni fyrir ofan skíðaskálan og neðstasvæði. Velkomin á skíði starfsmenn.

Það er í athugun með opnun í dag miðvikudaginn 11. mars

Við opnum ekki skíðasvæðið kl 14:00 eins og við áætluðum, en við erum með það í skoðun að opna kl 16:00 ef veður og aðstæður leifa. Nánari upplýsingar um kl 15:00 Starfsmenn    

Lokað í dag þriðjudaginn 10. mars

Við verðum að hafa lokað í dag, það er verið að vinna T-lyftusvæðið og það mun taka allan daginn og þá er eftir að vinna allt Búngusvæðið, en við stefnum á að opna kl 14:00 á morgun, nánari upplýsingar um kl 12:00 á morgun. Vakinn er athygli á því að snjóalög eru mjög ótrygg mjög víða í fjöllum fyrir ofan skíðasvæðið og eru það vinsamlega tilmæli til skíðafólks að virða það að skíða ekki utan við troðnar brautir þegar við opnum skíðasvæðið. Starfsmenn

Það verður lokað í dag mánudaginn 9. mars

Við verðum að hafa lokað í dag það hefur snjóað töluvert hjá okkur, það er verið að vinna allar brekkur og það mun taka allan daginn og fram á kvöld. Við opnum á morgun 10. mars kl 14-19, nánari upplýsingar um kl 12:00 á morgun. Starfsmenn  

Það verður lokað í dag sunnudaginn 8. mars

Það verður lokað í dag sunnudaginn 8. mars vegna veðurs, það er töluverður skafrenningur og er mjög blint. Við opnum á morgun kl 14-18. Nánari upplýsingar um kl 12:00 mánudaginn 9. mars. Starfsmenn  

Lokað eins og er sunnudaginn 8. mars

Því miður er lokað eins og er vegna veðurs, það er töluverður skafrenningur á öllu svæðinu. Við ætlum að reyna að opna kl 12:00, nýjar upplýsingar um kl 11:00 Starfsmenn  

Opið í dag laugardaginn 7. mars

Opið verður frá kl 10-16, veðrið í fjallinu er mjög gott SV-gola, -5c° en það er alskýjað, færið er mjög gott það hefur snjóað á öllu svæðinu og er búið að troða allar brekkur, nú er um að gera að drífa sig í fjallið og njóta dagsins. Allar lyftur verða keyrðar og göngubraut er við Hól. Velkomin á skíði starfsmenn