Fréttir

Opið í dag miðvikudaginn 25.mars

Opið í dag frá kl.14:00 til 19:00 Í dag er ágætis veður sunnan gola bjart hiti -2°c opnar verða Neðsta-lyfta og T-lyfta. Færið mjög gott allir velkomnir á svæðið   Starfsmenn

Opið í dag þriðjudaginn 24.mars

Opið verður í dag frá kl 16-19, það er NA-6-10m/sek og aðeins meira í hviðum, -1c° og smá éljagangur. við stefnum á að opna kl 16:00  og við opnum eingöngu Neðstu-lyftu. Velkomin skíði starfsmenn.  

Opið í dag sunnudaginn 22. mars

Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er Sv-5-10m/sek, 0c°, éljagangur og alskýjað, færið er unnið harðfenni ágætt færi fyrir alla. Við keyrum allar 3 lyfturnar og göngubraut við Hól tilbúinn um kl 13:00 Nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta dagsins. Velkomin á skíði starfsmenn  

Opið í dag laugardaginn 21. mars

Opið verður frá kl 10-16, veðrið er mjög gott S-gola, +5c° og léttskýjað, sólin aðeins að sína sig. Færið er troðið harðfenni, allar lyftur keyrðar, gönguspor við Hól. Velkomin á skíði Starfsmenn  

Opið í dag föstudaginn 20. mars

Opið verður í dag frá kl 14-19, verðrið er Austan-gola, +3c° og heiðskírt, færið er troðinn blautur snjór á neðstasvæðinu en á efrasvæðinu er ekki eins blaut og nægur er snjórinn, allar lyftur verða keyrðar, göngubraut er við Hól. Velkomin á skíði starfsmenn  

Opið í dag fimmtudaginn 19. mars

Opið verður í dag frá kl 14-20, veðrið er mjög gott S-gola, +5c° og léttskýjað, færið er betra en í gær ekki eins blautt, við erum búnir að troða allar brekkur og keyrum allar lyftur. göngubraut er við Hól. Velkomin í fjallið starfsmenn.    

Opið í dag miðvikudaginn 18. mars

Opið verður í dag frá kl 15-19, veðrið í fjallinu er mjög heitt eða +10c°, S-gola og léttskýjað, færið er nokkuð blaut við opnum í dag Neðstu-lyftu og T-lyftu. Gönguspor er við Hól. Velkomin á skíði starfsmenn  

Opið í dag þriðjudaginn 17. mars

Opið verður í dag frá kl 15-19, veðrið er mjög heitt +4c° og hefur ringt töluvert, þar af leiðir er snjórinn nokkuð blautur en búið er að troða neðstu-brekku og t-brekku. Neðsta-lyfta og T-lyfta verða opnar í dag, göngubraut er við Hól. Velkomin á skíði starfsmenn.    

Lokað í dag mánudaginn 16.mars

Lokað verður í dag mánudaginn 16. mars, en við opnum á morgun 17. mars kl 14-19 nánari upplýsingar um kl 12:00 á morgun.  Ath breyttur opnunartími núna opnum við kl 14:00 á virkum dögum. Starfsmenn.

Opið í dag sunnudaginn 15. mars

Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott S-gola, -1c° og léttskýjað, færið er troðinn harðpakkaður nýr snjór og allar brekkur tilbúnar, neðstabrekka, t-brekka, stálmastri og búngubakki. Allar lyftur keyrðar og göngubraut við Hól og suður Hólsdal. Velkomin á skíði starfsmenn.