Fréttir

Opið í dag laugardaginn 14. febrúar

Opið í dag frá kl 11-17 veðrið er frábært S-gola, -1c° og sól og færið er mjög gott, nú er um að gera að drífa sig í fjallið og á gönguskíði við Hól. Velkomin á skíði  Starfsmenn                                  

Frábær dagur í dag

Það var frábær dagur í dag, fjöldi gesta mæti á svæðið og á ég von á 200-300 manns á morgun laugardaginn 14. febrúar á svæðið, vil ég hvetja alla að koma í skíðaskálan og gæða sér á fjallakakkói skíðafélagsins, sjáumst hress í fjallinu. Starfsmenn  

Opið í dag föstudaginn 13. febrúar

Opið verður í dag frá kl 14-20, veðrið í fjallinu er mjög gott logn, -1c° og sól, færið er eins og það gerist best troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla, nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta útiverunar. Allar lyftur í gangi og lyftuspor við Hól Starfsmenn  

Opið í dag fimmtudaginn 12. febrúar

Opið verður í dag frá kl 16-21 veðrið hjá okkur er mjög gott heiðskírt, -6c° og logn, færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla. Allar lyftur í gangi og gönguspor við Hól Starfsmenn  

Opið í dag miðvikudaginn 11. febrúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið er mjög gott A-gola. -3c° og léttskýjað. færið er nýr troðinn snjór og allar brekkur klárar. Allar lyftur keyrðar og gönguspor við Hól   Starfsmenn  

Opið í dag þriðjudaginn 10 . febrúar

Opið verður í dag  frá kl 16-20, veðrið er mjög gott logn, -4c° og nánast heiðskírt, færið er mjög gott nýr troðinn snjór og allar brekkur klárar. Allar lyftur keyrðar og gönguspor við Hól Starfsmenn    

Lokað í dag mánudaginn 9. febrúar

Lokað verður í dag, en við opnum á morgun kl 16-20, nýjar upplýsingar um kl 12:00 á morgun þriðjudaginn 10. febrúar í síma 878-339 og á heimasíðu. Starfsmenn skíðasvæðisins vilja þakka öllum þeim fjölmörgu gestum sem heimsóktu okkur um helgina kærlega fyrir komuna.

opið í dag sunnudaginn 8. febrúar

Opið verður í dag frá kl 11-17, veðrið er mjög gott S-gola, -4c° og skýjað mjög gott færi er á öllu svæðinu, nú er um að gera að drífa sig á skíði. Allar lyftur í gangi og gönguspor við Hól Starfsmenn    

Opið í dag laugardaginn 7. febrúar

Opið verður í dag frá kl 11-17, veðrið er eins og að það gerist best S-gola, -7c° og heiðskírt, færið er mjög gott nýr troðinn snjór mjög gott færi fyrir alla, nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta góða veðursins. Allar lyftur í gangi og er gönguspor við Hól Starfsmenn

Opið í dag föstudaginn 6. febrúar

Það verður opið frá kl 15-20 í dag frábært veður og færi logn, -6c° og heiðskírt og færið er troðinn harpakkaður snjór, gott færi fyrir alla, nú er um að gera að drífa sig á skíði, Skarðsdalurinn er eins og málverk mjög fallegur. Allar lyftur keyrðar og gönguspor við Hól Starfsmenn