Fréttir

Opið í dag föstudaginn 2. janúar

Opið verður frá kl 14-20, veðrið í fjallinu er mjög gott, logn +4c° á neðstasvæði en +2c° á efstasvæði, færið er troðinn blautur snjór. Allar lyftur opnar, það verður að fara varlega á neðstasvæðinu og skíða í troðnum brautum. Gleðilegt ár og velkomin í fjallið Starfsmenn  

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir móttökurnar 2008

Starfsmenn skíðasvæðisins óska öllum íbúum Fjallabyggðar og öllum þeim fjölmörgu gestum sem heimsótt hafa skíðasvæðið á árinu 2008 gleðilegs árs og sjáumst hress á nýju ári. Þess má geta að gestir skíðasvæðisins á árinu 2008 eða þá tvö mánuði sem Valló ehf hefur rekið svæðið eru vel á annað þúsund. Við opnum á morgun föstudaginn 2. janúar kl 14:00-20:00 Nánari upplýsingar í síma 878-3399 og á heimasíðu skard.fjallabyggd.is