Fréttir

Opið í dag föstudaginn 6. febrúar

Opið verður í frá kl 15-20 , veðrið er frábært logn, -6c° og heiðskírt og færið er eins og gerist best harðpakkaður troðinn snjór frábært færi fyrir alla svo nú er um að gera að drífa sig á skíði. Allar lyftur í gangi og gönguspor við Hól Starfsmenn  

Opið verður í dag fimmtudaginn 5. febrúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið er mjög gott S-gola. -9c° hálfskýja og færið er mjög gott nýr troðinn snjór, mig langar að benda á að veðurspá fyrir næstu dag er mjög hagstæð og um að gera að drífa sig á skíði, gestir nær og fjær verið velkomin í Fjallabyggð. Allar þrjár lyftur opnar og gönguspor við Hól Starfsmenn  

Opið í dag miðvikudaginn 4. janúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið í fjallinu er N-3-6, -7c° og hálfskýjað, færið er mjög gott fyrir alla nýr troðinn snjór, nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta útiverunnar. Við erum með upplýstar allar brautir um 2,3 km og brekkur við allra hæfi. Allar lyftur keyrðar, gönguspor við Hól Velkomin í fjallið Stafrsmenn  

Opið í dag þriðjudaginn 3, febrúar

Opið verður frá kl 16-20 veðrið er mjög gott S-gola, heiðskírt, -6c° á neðrasvæði og -9c° á efrasvæði, færið er mjög gott harðpakkaður troðinn snjór frábært færi fyrir alla. Allar lyftur verða keyrðar, gönguspor við Hól Velkomin á skíði Starfsmenn  

Lokað í dag mánudaginn 2. febrúar

Lokað verður í dag, við opnum á morgun þriðjudaginn 3. febrúar kl 16-20, Það var frábær dagur í gær mikið fjölmenni mæti á skíði við mjög góðar aðstæður og allir fóru ánægðir heim og var ánægulegt hvað margir heimamenn mætu. Nýjar upplýsingar um kl 12 á morgun 3. febrúar Starfsmenn    

Opið í dag sunnudaginn 1, Febrúar

Opið verður frá kl 11-17 veðrið er mjög gott logn, -6c° og heiðskírt, það er ný fallinn snjór á öllu svæðinu gott færi fyrir alla. Gönguspor við Hól Neðsta-lyfta og T-lyfta opna kl 11:00 og Búngu-lyfta opnar kl 12:00 Velkomin í fjallið Starfsmenn  

Lokað í dag laugardaginn 31. janúar vegna veðurs

Lokað verður í dag vegna veðurs, það er N 8-15 og töluverður skafrenningur á öllu svæðinu. Við opnum á morgun sunnudaginn 1. febrúar kl 11:00 Nýjar upplýsingar um kl 10:00 á morgun Starfsmenn  

Það er lokað eins og er í dag laugardaginn 31. janúar

Það er lokað eins og er í dag vegna veðurs, ath verður hvort hægt verður að opna í dag kl 13:00 ef veður leyfir. Nánari upplýsingar í síma 878-3399 og á netinu um kl 12:00   Starfsmenn  

Opið í dag föstudaginn 30. janúar

Opið verður í dag frá kl 15-20, veðrið er mjög gott S-gola, -3c° og léttskýjað, færið er líka mjög gott troðinn nýr snjór færi fyrir alla, nægur snjór og breiðar og langar brekkur við allra hæfi. Allar lyftur í gangi Velkomin í fjallið Starfsmenn    

Opið í dag fimmtudaginn 29. janúar

Opið verður í dag frá kl 16-20, veðrið í fjallinu er S-3-6, -2c° og skýjað. Færið er  mjög gott nýr snjór í öllum brekkum gott  færi fyrir alla. Allar 3 lyftur verða í gangi. Velkomin í fjallið starfsmenn