Fréttir

Opið í dag fimmtudaginn 9. apríl skírdag

Við opnum kl 10-16, veðrið hjá okkur er frábært logn, -1c° og heiðskírt (sól), færið er troðinn þurr snjór og allar brekkur eru klárar. Allar lyftur eru í gangi og göngubraut er í Hólsdalnum. Leikjabraut fyrir börnin og gæsla fyrir yngstu börnin frá kl 12-14. Fróðleiksmoli dagsins: Við vorum með 25 daga opið í febrúar og gestir voru um 3000. Velkomin í fjallið starfsmenn.  

Opið í dag miðvikudaginn 8. apríl

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott S gola, +3c°, hálfskýjað (sólarglenna), færið er troðinn blautur snjór en er þurrari eftir því sem ofar kemur, allar brekkur tilbúnar. Við keyrum allar lyftur, göngubraut er í Hólsdalnum. Fróðleiksmoli dagsins: Við erum með 3 lyftur, Neðsta-lyfta er 430 metrar að lengd, hæðamismunur er um 100 metrar og hún flytur 480 manns á klst. T-lyftan er 1050 metrar, hæðarmismunur er 220 metrar og hún flytur 720 manns á klst og síðan er það Búngu-lyftan hún er 530 metar löng, hæðarmismunur er 180 metrar og hún flytur 550 manns á klst og þar endar skíðasvæðið í 650 metrum yfir sjávarmáli. Velkomin á skíði starfsmenn.    

Opið í dag þriðjudaginn 7. apríl

Opið verður í dag frá kl 13-19, veðrið er frábært logn, +3c°, heiðskírt og sól, færið er troðinn blautur snjór en aðeins þurrari snjór á efrasvæði. Allar lyftur í gangi og gönguspor við í Hólsdalnum. Fróðleiks moli dagsins: Við erum með 2 troðara, 3 snjósleða og starfsmenn eru 6 að tölu sem sjá til þessa að allir hlutir séu í lagi fyrir þig skíðamaður góður. Velkomin á skíði í dag starfsmenn

Opið í dag mánudaginn 6. apríl

Opið verður í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott það er logn, um 0c° og sólin er að brjótast í gengn, við keyrum allar lyftur, göngubraut verður tilbúinn um kl 15:00. Fróðleiksmoli dagsins: Afkastageta lyftana er um 1750 manns á klukkutíman, fallahæði svæðisins er um 500 metrar, lyftulengd er um 2 km og brautarlengd eru um 2,3 km eftir þeirri leið sem valin er. Velkomin á skíði starfsmenn.

Opið í dag sunnudaginn 5. apríl

Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott logn, heiðskírt og sól, -1c°, færið er eining mjög gott troðinn þurr snjór og allar brekkur klárar. Við keyrum Neðstu-lyftu, T-lyftu og Búngu-lyftu, göngubraut er klár í Hólsdalnum. Nú er um að gera njóta dagsins og góða veðursins. Velkomin á skíði starfsmenn  

Opið í dag laugardaginn 4, apríl

Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott S og SV 6-8 m/sek, -1c° og heiðskírt (sól). Færið er troðinn þurr snjór. Allar lyftur eru opnar, göngubraut er við Hól Velkomin á skíði starfsmenn.  

Opið í dag föstudaginn 3. apríl

Opið verður í dag frá kl 16-19, veðrið á svæðinu NA 5-10m/sek, +1c° á neðrasvæðinu en um -2c° á efrasvæði og alskýjað, það er troðinn blautur snjór á neðrasvæðinu en troðinn þurr snjór í efrasvæðinu. Við opnum eingöngu  Neðstu-lyftuna, göngubraut verður tilbúinn um kl 15:00 við Hól. Umsjónarmaður skíðasvæðis biður skíðamenn að skíða ekki fyrir ofan neðstasvæðið og virða það. Velkomin á skíði starfsmenn.

Lokað í dag fimmtudaginn 2. apríl

Lokað verður í dag vegna veðurs, það er NA-12-16m/sek og meira í hviðum, það er verið að vinna á öllu svæðinu og enn er verið að moka snjó burt af svæðinu, hann telst í metrum á Búngusvæðinu, við verðum vonandi tilbúnir með allt svæðið á morgun um kl 14:00. Nánari fréttir á morgun um kl 10:00  

Lokað í dag 1. apríl

Við verum að hafa lokað í dag við erum að vinna brekkurnar og það mun taka allan daginn og fram á kvöld, við opnum á morgun kl 14:00, nánari upplýsingar um kl 12 á morgun. Starfsmenn.