Opið í dag þriðjudaginn 7. apríl

Snona getur lífið við skíðaskálan verið gott.
Snona getur lífið við skíðaskálan verið gott.

Opið verður í dag frá kl 13-19, veðrið er frábært logn, +3c°, heiðskírt og sól, færið er troðinn blautur snjór en aðeins þurrari snjór á efrasvæði.

Allar lyftur í gangi og gönguspor við í Hólsdalnum.

Fróðleiks moli dagsins:

Við erum með 2 troðara, 3 snjósleða og starfsmenn eru 6 að tölu sem sjá til þessa að allir hlutir séu í lagi fyrir þig skíðamaður góður.

Velkomin á skíði í dag starfsmenn