Opið í dag miðvikudaginn 8. apríl

Svona er lífið búið að vera í vetur.
Svona er lífið búið að vera í vetur.

Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott S gola, +3c°, hálfskýjað (sólarglenna), færið er troðinn blautur snjór en er þurrari eftir því sem ofar kemur, allar brekkur tilbúnar.

Við keyrum allar lyftur, göngubraut er í Hólsdalnum.

Fróðleiksmoli dagsins:

Við erum með 3 lyftur, Neðsta-lyfta er 430 metrar að lengd, hæðamismunur er um 100 metrar og hún flytur 480 manns á klst. T-lyftan er 1050 metrar, hæðarmismunur er 220 metrar og hún flytur 720 manns á klst og síðan er það Búngu-lyftan hún er 530 metar löng, hæðarmismunur er 180 metrar og hún flytur 550 manns á klst og þar endar skíðasvæðið í 650 metrum yfir sjávarmáli.

Velkomin á skíði starfsmenn.