Opið í dag fimmtudaginn 9. apríl skírdag

Lífið er skemmtilegt í fjallinu.
Lífið er skemmtilegt í fjallinu.

Við opnum kl 10-16, veðrið hjá okkur er frábært logn, -1c° og heiðskírt (sól), færið er troðinn þurr snjór og allar brekkur eru klárar.

Allar lyftur eru í gangi og göngubraut er í Hólsdalnum.

Leikjabraut fyrir börnin og gæsla fyrir yngstu börnin frá kl 12-14.

Fróðleiksmoli dagsins:

Við vorum með 25 daga opið í febrúar og gestir voru um 3000.

Velkomin í fjallið starfsmenn.